Sertral - Aukaverkanir

Geðheilsa Lyfjainntaka

Ég er með smá spurningu. Ég er að fara að byrja að taka Sertral í fyrsta skipti vegna þunglyndis, er mikið um magakveisu þegar lyfið er tekið ?

Þú getur fundið fyrir ógleði eða óþægindum frá maga þegar þú byrjar á Sertral. Allt að 24% þeirra sem taka lyfið finna fyrir ógleði en innan við 10% kasta raunverulega upp. Það þýðir að það eru meira en 90% líkur á að allt verði í besta lagi hjá þér. Flestir finna ekki fyrir neinum óþægindum frá meltingarfærum.

Aukaverkanir eins og þessar eru algengastar fyrstu tvær vikurnar en hverfa svo þegar líkaminn hefur vanist nýju lyfi. Ef þú finnur fyrir aukaverkunum þá mæli ég með því að þú gefir þessu smá tíma, amk 2-4 vikur. Það getur tekið þennan tíma fyrir líkamann að komast í jafnvægi og fyrir lyfin að byrja að virka eins og þau eiga að gera.