Bórsýruslím

Húðsjúkdómar

 

Getið þið gefið mér upplýsingar um Bórsýruslím? Er það gott á afrifur t.d undir brjóstum og svuntu, þar sem húð liggur við húð? Ef svo er, hvernig er best að haga meðferðinni?

 

Það er ekki mælt með því að setja bórsýruslím á rofna húð eins og sár eða skurði. Þú getur lesið þér meira til um bórsýruslím á síðu framleiðanda: http://www.pharma.is/is/page/borsyruslim. Roði undir húð eins og undir brjóstum og svuntu getur orsakast af sveppasýkingu. 

 

Ég mæli með því að þú ræðir við lækni um hvernig best er að halda henni niðri.