Brúnkukrem á meðgöngu
Mig langaði til að forvitnast, er óhætt að nota brúnkukrem á meðgöngu
Ég mæli ekki með því að þú notir brúnkukrem fyrstu 3 mánuði meðgöngunnar. Brúnkumeðferð er talin hættulaus en getur þó stundum valdið ofnæmissvörun. Því er ekki ráðlagt að nota brúnkukrem á meðgöngu ef hormónabreytingar gera húðina næmari og viðkvæmari en áður.
Ávallt er ráðlagt að bera kremið eða úðann á lítinn hluta húðar í fyrstu til þess að athuga ofnæmissvörun.