Hárþynning

Hár Vítamín

 Ekki eigið þið lausn á hárþynningu, ég er að leita að leið til að auka hárvöxt og þykkt hársins. Hárið mitt er farið að þynnast of mikið.

 

Það eru til ýmsar tegundir af vítamínum og bætiefnum sem eru til þess ætluð að auka hárvöxt. Sem dæmi má nefna ýmsar B-vítamínblöndur og svo vítamín- og steinefnablöndur sem eru sérvaldar fyrir hár og hárlos. Ég mæli með því að þú kíkir í Lyfju eða Heilsuhúsið og skoðir úrvalið.

Ef þetta er ekki að duga þér þá er hægt að ræða við lækni um aðrar leiðir, t.d. Regaine sem er áburður til að bera í hársvörð eða Propecia töflur sem er lyf við skallamyndun. Bæði þessi lyf eru lyfseðilsskyld.