Lyf milli landa

Lyfjainntaka

Má hafa 2 viagra töflur með sér til Dublin?

Ég mundi telja að sömu reglur gildi þar og ef við snérum dæminu við og þú kæmir hingað. Komi ferðamaður til landsins má hann hafa meðferðis allt að 100 daga skammt af lyfjum. Hinsvegar mega tollayfirvöld ávallt krefjast þess að fá staðfestingu svosem vottorð frá lækni að viðkomandi þurfi raunverulega á þessum lyfjaskammti að halda. 

Ég mundi ráðleggja þér að fá afrit af lyfseðli og hafa hann meðferðis ef svo fer að tollurinn gerði athugasemd. Það sýnir bæði að læknir ávísaði meðferðinni sem og að lyfið var agreitt úr apóteki. Einnig að hafa töflurnar í upprunalegunum umbúðum.