Sýking í leggöngum

Kvensjúkdómar

Ég var að velta fyrir mér hvenær Vivag stílarnir væru væntanlegir? Er eitthvað sem hægt er að nota í staðinn?

Framleiðandi Vivag stílanna er hættur framleiðslu á þeim svo þeir eru ekki væntanlegir aftur.

Ég myndi benda þér á að skoða vörurnar frá isay. Í næsta apóteki Lyfju ættir þú að finna leggangatöflur sem heita isay: Vaginal infection. Töflurnar geta bæði meðhöndlað og fyrirbyggt sýkingar í leggöngum af völdum sveppa og baktería. Töflunum er komið fyrir í leggöngum líkt og Vivag stílunum en hversu mikil notkunin er fer eftir því hvort sé um að ræða meðferð eða sem fyrirbyggjandi.

Sé verið að nota töflurnar sem fyrirbyggjandi er það 1 leggangatafla annan hvern dag í 14 daga en meðferð er 1 leggangatafla á dag í 14 daga.