Svefnvandamál

Algengir kvillar

Er hægt að kaupa melatónín hjá ykkur án þess að hafa lyfjaseðil? Ef ekki, hvar fæst það þá? Ef hvergi, er eitthvað með svipaða virkni sem er aðgengilegt?

Melatónín fæst ekki án lyfseðils á Íslandi. Þær reglur ættu einnig að gilda annarsstaðar í Evrópu þar sem melatónín er flokkað sem lyf. Melatónín fæst í búðum í Bandaríkjunum. 
Ég get bent þér á eftirtalin bætiefni sem gætu komið að gagni við svefnvandamálum en þú færð þau í næstu Lyfju:  

  • Melissa Dream
  • Magnolia Officinalis
  • Avena Sativa   

Elvar Lyfjafræðingur