Svitakirtlar

Algengir kvillar

Er hægt að fara í svitakirtlaeyðingu (e. sweat gland removal) á Íslandi?Hversu dýrt er það? Er vesen að fá leyfi til að fara í það? Þarf maður að vera orðinn sjálfráða?

Já, það er hægt. Það eru t.d. lýtalæknar sem gera svona aðgerðir og þú myndir panta þér tíma hjá einum slíkum til þess að ræða málin og ath. hvort svona aðgerð myndi henta fyrir þig. Verðskráin þeirra er mismunandi og sumir þeirra birta hana á vefsíðum sínum. Ég reikna með að þú myndir þurfa samþykki foreldris/forráðamanns ef þú ert ekki orðinn lögráða.