Vítamín fyrir unglinga

Vítamín

 Hvađa vítamín og steinefni eđa snefilefni eru mikilvæg fyrir unglingstráka ađ taka inn? 

 

Ég myndi mæla með fjölvítamíni ásamt steinefnum með A og D vítamínum ef hann er ekki að taka lýsi. Ef hann tekur lýsi sem er auðvitað ekki verra vegna omega innihalds, þá mæli ég með fjölvítamíni og steinefnum án A og D vítamína. 

 

Ef þú hefur áhyggjur af járnskorti, blóðleysi, þreytu eða finnst hann sýna einhver önnur merki um vítamínskort þá mæli ég með því að þú farir með hann í blóðprufu (læknir). Það er líka hægt að fá það gert þó engin einkenni séu til staðar bara til að tékka á stöðunni. Þá er hægt að sjá hvort það þurfi að leggja áherslu á eitthvað sérstakt í fæðunni eða með uppbótarvítamínum. Annars er fjölvítamín með steinefnum málið.