DuoTrav

Glákulyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Tímólól Travóprost

Markaðsleyfishafi: Alcon | Skráð: 1. júní, 2007

DouTrav inniheldur tvö virk innihalds efni, tímólól og travóprost og er notað við gláku (gleiðhornsgláku) og háum augnþrýstingi. Gláka stafar af ójafnvægi milli framleiðslu á augnvökva og frárennslis hans, með þeim afleiðingum að vökvinn safnast fyrir og þrýstingur í auganu hækkar. Þegar þrýstingurinn hækkar geta æðar til sjónhimnu þrengst og blóðflæði um þær minnkað. Ef ekki er brugðist við í tíma getur það valdið skemmdum í sjónhimnunni og jafnvel blindu. Gláka er flokkuð í tvær tegundur, þrönghorns- og gleiðhornsgláku, eftir því hvernig frárennsli augnvökvans er hindrað. Verkunarmáti lyfsins felst í því að lækka augnþrýstinginn með tvennum hætti annars vegar með því að auka útflæði augnvökvans og hins vegar með því að draga úr framleiðslu augnvökvans.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Augndropar.

Venjulegar skammtastærðir:
1 dropi í auga einu sinni á dag, alltaf á sama tíma sólarhrings.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Um 2 klst. Hámarksverkun næst eftir 12 klst.

Verkunartími:
Minnst 24 klst. með einum skammti.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum þar við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Nota skal lyfið innan 4ra vikna frá því að innri umbúðir þess hafa verið opnaðar.

Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú mannst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Augnþrýstingur getur hækkað sem getur síðan leitt til blindu ef notkun lyfsins er hætt. Ekki hætta notkun lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að valda óþægindum. Ef stórir skammtar eru notaðir skal skola þá úr með volgu vatni og ekki nota annan skammt fyrr en kemur að þeim næsta. Ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Lyfið getur smám saman breytt augnlit. Meðferð á öðru auganu getur því leitt til þess að lithimnur augna verði varanlega mislitar. Fylgjast þarf reglulega með augnþrýstingi til þess að meta áhrif lyfsins.


Aukaverkanir

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Augnþurrkur          
Breytingar á augnhárum, mislitun á húð umhverfis augu          
Erting, kláði og roði í auga eða augnloki          
Hjartsláttartruflanir, hægur hjartsláttur          
Hækkaður eða lækkaður blóðþrýstingur          
Höfuðverkur, sundl          
Ljósfælni og verkir í auga          
Sjóntruflanir          
Taugaveiklun          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      
Verkir í útlimum          

Milliverkanir

Ef önnur staðbundin augnlyf eru notuð samtímis, skal láta líða a.m.k. 5 mín. á milli ídreypinga. Milliverkanir við önnur lyf hefur ekki verið kannaðar sérstaklega. Talið er að þessi lyf geti haft áhrif á ákveðnar aukaverkanir lyfsins eins og t.d. á blóðþrýsting og hjarslátt. Talið er að lyfið geti líka aukið blóðsykurlækkandi áhrif sykursýkislyfja.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með of- eða vanvirkan skjaldkirtil
  • þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
  • þú sért með sykursýki
  • þú sért með öndunarfærasjúkdóm
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért ekki með augastein í öðru eða báðum augum

Meðganga:
Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.

Brjóstagjöf:
Tímólól berst í brjóstamjólk. Konur með barn á brjósti eiga því ekki að nota lyfið.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Eins og á við með önnur augnlyf getur notkun augndropa valdið tímabundnum sjóntruflunum.

Áfengi:
Í litlum skömmtun hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Notkun lyfsins er bönnuð í sumum íþróttagreinum.

Annað:
Rotvarnarefni í augndropunum getur skemmt mjúkar augnlinsur. Láttu a.m.k. 15 mín. líða þar til þú setur linsurnar í þig eftir að þú hefur notað dropana.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.