Enalapril Portfarma

Lyf með verkun á renínangíótensín-kerfið | Verðflokkur: $medicine.getPriceCategory().name | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Enalapríl

Markaðsleyfishafi: Portfarma | Skráð: 1. janúar, 2009

Enalapril Portfarma tilheyrir flokki lyfja sem kallast ACE-hemlar. Lyf í honum hamla myndun angíótensíns II, eins öflugasta æðaþrengjandi efnis í líkamanum. Auk æðaþrengjandi áhrifa minnkar angíótensín II vatnsútskilnað í nýrum, og það eykur rúmmál blóðs og stuðlar frekar að því að blóðþrýstingur hækkar. Lyfin hindra einnig niðurbrot æðavíkkandi efnis í líkamanum, bradýkíníns. Lyfin lækka því blóðþrýsting með því að víkka út æðar og skilja vatn út úr líkamanum. Virka efnið enalapríl er notað við háþrýstingi og hjartaöng, og líka til þess að minnka álag á hjartasjúklingum með hjartabilun. Þegar lyfið er gefið við hjartabilun eru þvagræsilyf, t.d. hýdróklórtíazíð, oft notuð samtímis.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
2,5-20 mg á dag.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Áhrif á blóðþrýsting: hámarks áhrif nást eftir 4-6 klst.

Verkunartími:
Áhrif á blóðþrýsting: a.m.k. 24 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ástand getur versnað þegar töku lyfsins er hætt. Æskilegt er að minnka skammta smám saman frekar en að hætta skyndilega. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða. egt er að fylgst sé reglulega með nýrnastarfsemi og jafnvægi salta í líkamanum.


Aukaverkanir

Algengustu aukaverkanir lyfsins eru höfuðverkur og svimi og koma fram hjá um 5% þeirra sem taka lyfið.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Gula          
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir        
Hraður hjartsláttur, hjartsláttartruflanir        
Höfuðverkur, svimi, þreyta, þróttleysi          
Kviðverkir, niðurgangur          
Lágur blóðþrýstingur, yfirlið        
Lækkun á blóðsykri          
Mæði, verkur fyrir brjósti        
Ógleði          
Truflun á bragðskyni          
Útbrot          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      
Þokusýn          
Þunglyndi          
Þurr hósti          

Milliverkanir

Samtímis notkun blóðþrýstingslækkandi lyfja, t.d. beta-blokka, getur aukið blóðþrýstingslækkandi áhrif enalapríls. Enalapríl getur aukið blóðsykurlækkandi áhrif insúlíns og sykursýkilyfja til inntöku.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
  • þú sért með sykursýki
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
fið eykur líkur á fósturskaða sé það notað á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk. Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins samhliða brjóstagjöf.

Börn:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins fyrir börn.

Eldra fólk:
Minni skammtar eru oft notaðir.

Akstur:
Lyfið getur valdið svima og þreytu og þar með haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Áfengi getur haft óæskileg áhrif á blóðþrýsting og hjartsláttarhraða, og aukið líkur á aukaverkunum lyfsins. Ekki er æskilegt að neyta áfengis meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.