Esopram

Geðdeyfðarlyf | Verðflokkur: G/0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Escítalópram

Markaðsleyfishafi: Teva B.V. | Skráð: 1. apríl, 2010

Esopram er notað til að meðhöndla alvarleg þunglyndisköst, ofsahræðslu, félagsfælni og þráhyggju- og árátturöskun. Escítalópram, virka efni lyfsins, hefur sérhæfð áhrif á virkni taugaboðefnisins serótóníns í heila. Talið er að breytingar á starfsemi taugafrumna, sem hafi þetta boðefni að geyma, orsaki m.a. geðdeyfð. Eldri geðdeyfðarlyf eru ólík escítalópram, þau eru ekki eins sérhæfð og það og hafa líka áhrif á fleiri boðefni. Lyfið er tekið inn einu sinni á dag, án tillits til máltíða. Svo virðist sem escítalópram og skyld lyf virki svipað á einkenni geðdeyfðar og hin eldri. Þau bæta skap, auka líkamlega virkni, bæta matarlyst og auka áhuga á daglegu lífi. Nýrri lyfin eru þó ekki með eins róandi verkun og þau eldri, og eru líka laus við margar alvarlegar aukaverkanir eldri lyfjanna. Einnig er minni hætta á eitrunum af völdum nýrri lyfjanna. Aftur á móti er líklegra að escítalópram og skyld lyf valdi svefntruflunum, minnkaðri kynhvöt eða kyngetu og ógleði. Flestar þessar aukaverkanir eru verstar í upphafi meðferðar en mildast með tímanum. Escítalópram er náskylt cítalópram (virka efnið í Cipramil og Oropram).


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
5-20 mg í senn einu sinni á dag. Töflurnar gleypist með vatnsglasi. Má ekki tyggja þær.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
2-4 vikur.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta töku lyfsins skyndilega. Sjúkdómseinkenni geta aftur komið fram þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir hafa verið stórir skammtar eða vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða.


Aukaverkanir

Aukaverkanir eru algengastar á fyrstu tveimur vikum meðferðar en yfirleitt dregur úr þeim við áframhaldandi meðferð.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Aukin eða minnkuð matarlyst          
Geispar          
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir        
Hjartsláttartruflanir          
Krampar          
Minnkuð kynhvöt, skortur á fullnægingu (konur)          
Munnþurrkur, aukin svitamyndun          
Ógleði, niðurgangur og hægðatregða          
Svartar eða blóðugar hægðir, blóð í þvagi        
Svefnleysi, svefnhöfgi          
Svimi          
Sýkingar          
Truflun á sáðláti, getuleysi          
Uppköst          
Útbrot og kláði          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      
Vöðvaverkir, liðverkir          
Þreyta, hiti          
Kvíði, eirðarleysi          
Óeðlilegir draumar          
Náladofi, skjálfti          

Milliverkanir

Jóhannesarjurt og ginkgo geta haft áhrif á virkni lyfsins. Hjá sjúklingum með sykursýki getur meðferð með SSRI lyfjum haft áhrif á sykurstjórnun (blóðsykurslækkun eða blóðsykurshækkun). Nauðsynlegt getur verið að aðlaga skammta af insúlíni og/eða sykursýkilyfjum til inntöku.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með flogaveiki
  • þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi
  • þú sért með sykursýki
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú hafir átt við oflæti (manía) að stríða
  • þú hafir sögu um blæðingartilhneigingu

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.

Eldra fólk:
Minni skammtar eru oft notaðir.

Akstur:
Lyfið getur dregið úr dómgreind og viðbragðsflýti. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Áhrif áfengis á lyfið eru ekki að fullu þekkt, því er óæskilegt að neyta áfengis meðan lyfið er tekið. Almennt er mælt gegn því að neyta áfengis samhliða meðferð með geðdeyfðarlyfjum.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Sé meðferð hætt snögglega eftir langvarandi meðferð geta komið fram fráhvarfseinkenni (höfuðverkur og ógleði) hjá sumum sjúklingum. Ekkert bendir þó til ávanahættu.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.