Estrofem 2 mg

Kvenhormón | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Estradíól

Markaðsleyfishafi: Novo Nordisk | Skráð: 1. desember, 1980

Estradíól er hormón sem líkaminn framleiðir. Það er gefið eitt og sér, í hormónameðferð eftir tíðahvörf eða eftir brottnám eggjastokka. Eftir tíðahvörf hætta eggjastokkarnir að framleiða estradíól og prógesterón. Hormónameðferðin miðast að því að vega skortinn upp sem verður og að slá á einkenni sem eru samfara honum. Hormónameðferð eftir tíðahvörf minnkar líkur á beinþynningu þar sem estradíól heldur áfram eðlilegu viðhaldi beina.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
2 mg á dag.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Magn estradíóls í blóði eykst nokkrum klst. eftir inntöku. Einkenni hormónaskorts hverfa á nokkrum vikum eða mánuðum.

Verkunartími:
Ekki að fullu þekktur.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef fleiri en 36 klst. líða frá síðasta skammti skaltu sleppa þeim sem gleymdist halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvær töflur í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Hætta skal uppbótarmeðferð eftir tíðahvörf í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef stórir skammtar eru teknir eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða en ráðlegt er að fara reglulega í skoðun. Ákveðið nánar í samráði við lækni.


Aukaverkanir

Aukaverkanir eru tíðari í upphafi meðferðar og eftir því sem skammtar eru stærri.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Breytingar í brjóstum        
Eymsli í brjóstum, brjóstastækkun          
Gula          
Háþrýstingur          
Höfuðverkur, ógleði          
Kviðverkir          
Sinadráttur          
Verkur í fótum, nára eða fyrir brjósti        
Þunglyndi          
Þyngdaraukning, bjúgur          

Milliverkanir

Lyf sem auka áhrif lifrarensíma, t.d. sum flogaveikilyf eða sýklalyf, geta dregið úr virkni lyfsins. Jóhannesarjurt og ginseng geta haft áhrif á virkni lyfsins.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • einhver í ættinni sé með sykursýki, hjarta- eða æðasjúkdóm
  • grunur leiki á um þungun
  • þú sért með astma
  • þú sért með háan blóðþrýsting, hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með mígreni
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með rauða úlfa (lupus)
  • þú sért með sykursýki
  • þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með blæðingar frá fæðingarvegi af óþekktum ástæðum

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Lyfið er aðeins notað eftir tíðahvörf.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá konum eldri en 65 ára.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.