Inspra

Þvagræsilyf | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Eplerenón

Markaðsleyfishafi: Pfizer | Skráð: 1. ágúst, 2005

Inspra, sem inniheldur virka efnið eplerenón, er þvagræsilyf með blóðþrýstingslækkandi verkun. Þvagræsilyf geta raskað hlutfalli natríum- og kalíumsalta sem skiljast út úr líkamanum með þvagi. Eplerenón er kalíumsparandi, það minnkar útskilnað kalíums og eykur útskilnað natríums. Lyfið er notað til að draga úr dauðsföllum vegna hjarta- og æðasjúkdóma og sjúkdómum hjá sjúklingum með einkenni um hjartabilun eftir nýlega kransæðastíflu.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
50 mg á dag. Meðferð er hafin með 25 mg einu sinni á dag og aukin smám saman upp í 50 mg einu sinni á dag. Töflurnar gleypist með vatnsglasi.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Um 2 klst.

Verkunartími:
2-3 dagar.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Forðastu mat sem inniheldur mikið kalíum, t.d. þurrkaða ávexti og svokallað heilsusalt.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ekki er ástæða til að hafa áhyggjur ef einn skammtur gleymist. Taka ætti skammtinn þegar munað er eftir honum, en fyrir kvöldmat þar sem lyfið getur kallað á tíð þvaglát um nóttina. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni, annars er hætta á að sjúkdómur versni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Það þarf að mæla magn kalíums í sermi reglulega meðan á meðferðinni stendur.


Aukaverkanir

Lyfið þolist almennt vel og aukaverkanir þess eru venjulega vægar og tímabundnar.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Hjartabilun        
Niðurgangur, ógleði          
Sundl, lágur blóðþrýstingur          
Verkur í fótum, nára eða fyrir brjósti        

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með sykursýki
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið getur valdið svima. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Veldur einnig auknum vökvaútskilnaði og því eru meiri líkur á vökvaskorti og timburmönnum. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:
Bannað í og utan keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.