Míron Smelt

Geðdeyfðarlyf | Verðflokkur: G/0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Mirtazapín

Markaðsleyfishafi: Teva B.V. | Skráð: 1. nóvember, 2007

Míron Smelt er geðdeyfðarlyf. Mirtazapín, virka efni lyfsins, er efnafræðilega skylt geðdeyfðarlyfinu míanseríni en áhrif þessara tveggja lyfja á taugaboðefni í heila eru nokkuð ólík. Mirtazapín hefur áhrif á geðdeyfð og virkar jafnframt róandi. Mirtazapín hefur sambærileg áhrif og önnur geðdeyfðarlyf, það bætir skap og matarlyst, eykur líkamlega virkni og áhuga á daglegu lífi. Þessi áhrif koma aðeins fram hjá sjúklingum með geðdeyfð en sjást ekki ef heilbrigðir taka lyfið. Mirtazapín virkar auk þess róandi og hentar vel ef svefntruflanir fylgja geðdeyfð.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Munndreifitöflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
15-45 mg á dag, venjulega að kvöldi fyrir svefn, eða kvölds og morgna. Töflurnar eru settar á tunguna.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Um 1-2 vikur, full verkun næst á 2-4 vikum.

Verkunartími:
Ekki að fullu þekktur.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum, upprunalegum umbúðum við stofuhita, varið raka og ljósi þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Sjúkdómseinkenni geta aftur komið fram þegar töku lyfsins hættir. Ekki hætta að taka lyfið nema í samráði við lækni. Ekki hætta töku lyfsins snögglega.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Meðferð stendur venjulega í a.m.k. 6 mánuði.


Aukaverkanir

Aukin matarlyst og þyngdaraukning er mest áberandi á fyrstu vikum meðferðar, en síðan dregur úr þessari aukaverkun. Aðrar aukaverkanir eru mun sjaldgæfari.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Aukin matarlyst, þyngdaraukning          
Bjúgur          
Gula        
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir        
Höfuðverkur, svimi, þreyta          
Krampar        
Munnþurrkur          
Ógleði, uppköst, niðurgangur          
Skapgerðarbreytingar          
Svimi þegar staðið er upp          
Útbrot          
Svefndrungi, róandi áhrif          
Óeðlilegir draumar          
Rugl, kvíði, svefnleysi          
Svefnhöfgi, sundl, skjálfti          
Liðverkir, vöðvaverkir, bakverkir          

Milliverkanir

Lyfið getur aukið slævandi áhrif róandi lyfja.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með flogaveiki
  • þú sért með gláku
  • þú sért með lágan blóðþrýsting
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
  • þú sért með sykursýki
  • þú sért með þvagtregðu
  • þú hafir fengið hjartaáfall eða sért með hjartasjúkdóm
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með geðsjúkdóm
  • þú sért með stíflu í þörmum

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið getur skert athygli. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Ekki neyta áfengis meðan lyfið er tekið. Hreyfigeta skerðist og sljóvgandi áhrif lyfsins aukast ef áfengis er neytt samtímis lyfjatöku. Almennt er mælt gegn því að neyta áfengis samhliða meðferð með geðdeyfðarlyfjum.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.