NuvaRing

Getnaðarvörn | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Etinýlestradíól Etónógestrel

Markaðsleyfishafi: N. V. Organon | Skráð: 1. nóvember, 2002

NuvaRing er getnaðarvarnarlyf. Lyfið er í formi leginnleggs (hringur). Það inniheldur tvö virk efni (hormón), etónógestrel og etinýlestradíól. Etónógestrel binst prógesterónviðtökum og hefur sömu áhrif á líkamann og kvenhormónið prógesterón. Etónógestrel er virkt umbrotsefni lyfsins desógestrels. Etinýlestradíól verkar eins og kvenhormónið estradíól, en verkunartími þess er þó lengri þegar það er tekið inn. Getnaðarvörn lyfsins felst fyrst og fremst í því að koma í veg fyrir egglos. Jafnframt þessu hafa hormónin áhrif á slímmyndun í leghálsinum með þeim afleiðingum að sæðisfrumur komast síður upp í legið og erfitt er fyrir frjóvgað egg að festast í slímhúð legsins.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Leginnlegg (hringur).

Venjulegar skammtastærðir:
Leginnleggi er komið fyrir í leggöngum þar sem hann er hafður samfellt í 3 vikur. Eftir 21 dag er gert hlé í 7 daga og verða þá blæðingar. Að 7 dögum liðnum er nýju leginnleggi komið fyrir hvort sem tíðablæðingum er lokið eða ekki. Hvet leginnlegg inniheldur 11,7 mg etónógestrel og 2,7 mg etinýlestradíól.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Lyfið veitir örugga getnaðarvörn strax frá fyrsta degi. Ráðlagt er að nota aðra getnaðarvörn án hormóna fyrstu 7 dagana sem NuvaRing er notað.

Verkunartími:
Lyfið veitir örugga getnaðarvörn á meðan það er tekið samkvæmt leiðbeiningum.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum þar sem börn hvorki ná til né sjá. Eftir afhendingu úr apóteki geymist lyfið í 4 mánuði við stofuhita.

Ef skammtur gleymist:
Ef gleymist að koma nýjum hring fyrir að loknu hléi skaltu gera það um leið og þú manst eftir því. Notaðu aðra getnaðarvörn, án hormóna, næstu 7 daga. Sjá nánar í leiðbeiningum sem fylgja lyfinu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Hætta má notkun getnaðarvarnalyfja hvenær sem hentar.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Á ekki við.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða en ráðlegt er að fara reglulega í eftirlit hjá lækni. Ákveðið nánar í samráði við lækni.


Aukaverkanir

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Bólga eða verkir í fótum eða nára, verkur fyrir brjósti      
Bólur í húð          
Gula, mjög mikill kláði      
Höfuðverkur, ógleði          
Kviðverkir, tíðaverkir          
Minnkuð kynhvöt          
Mæði, mjög mikill höfuðverkur, sjóntruflanir      
Óþægindi við notkun lyfsins          
Skapbreytingar          
Spenna í brjóstum          
Útbrot, kláði          
Útferð          
Þvagfærasýkingar          
Þyngdaraukning          

Milliverkanir

Jóhannesarjurt og ginseng geta haft áhrif á virkni lyfsins. Auk þess geta getnaðarvarnartöflur minnkað sykurþol og aukið þörf sykursjúkra einstaklinga fyrir insúlín eða önnur sykursýkislyf.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • einhver í ættinni sé með sykursýki, hjarta- eða æðasjúkdóm
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með bólgusjúkdóm í þörmum
  • þú sért með háan blóðþrýsting, hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með mígreni
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með rauða úlfa (lupus)
  • þú sért með sykursýki
  • þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
  • þú reykir
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með blæðingar frá fæðingarvegi af óþekktum ástæðum

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum. Lyfið á ekki að nota á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk og getur breytt samsetningu og dregið úr magni hennar.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Lyfið er eingöngu ætlað konum á barneignaraldri.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Reykingar auka hættuna á aukaverkunum, s.s. blóðtappa af völdum estrógena.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.