Qlaira

Getnaðarvörn | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Díenógest Estradíól

Markaðsleyfishafi: Bayer Schering Pharma | Skráð: 1. nóvember, 2009

Qlaira er getnaðarvarnarlyf. Það flokkast sem fjögurra fasa samsett, lágskammta getnaðarvarnarlyf og inniheldur tvö virk efni (hormón), díenógest og estradíól valerat. Díenógest er samtengt hormón og hefur sömu áhrif í líkamanum og kvenhormónið prógesterón. Estradíól valerat virkar eins og kvenhormónið estradíól, en verkunartími þess er þó lengri þegar það er tekið inn. Getnaðarvörn lyfsins felst fyrst og fremst í því að koma í veg fyrir egglos. Jafnframt þessu hafa hormónin áhrif á slímmyndun í leghálsinum með þeim afleiðingum að sæðisfrumur komast síður í legið og erfitt er fyrir frjóvgað egg að festast í slímhúð legsins. Spjaldið inniheldur 26 litaðar töflur sem innihalda virku innihaldsefnin í fjórum mismundandi styrkleikum og svo tvær hvítar lyfleysutöflur. Tíðablæðingar verða vanalega þegar síðustu töflurnar á spjaldinu eru teknar inn og stundum er þeim ekki lokið þegar byrjað er á næsta spjaldi.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
Fyrsta taflan er tekin á fyrsta degi tíðablæðinga og síðan er ein tafla tekin daglega, helst alltaf á sama tíma dags, samfleytt í 28 daga án hlés. Þegar spjaldið er búið er strax byrjað á næsta spjaldi daginn eftir. Hver dökkgul tafla inniheldur 3 mg estradíól, hver rauð tafla inniheldur 2 mg estradíól og 2 mg díenógest, hver ljósgul tafla inniheldur 2 mg estradíól og 3 mg díenógest, hver dimmrauð tafla inniheldur 1 mg estradíól og hver hvít tafla inniheldur ekkert virkt efni.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Lyfið veitir örugga getnaðarvörn strax frá fyrsta degi ef töflurnar eru teknar samkvæmt leiðbeiningum.

Verkunartími:
Lyfið veitir örugga getnaðarvörn á meðan það er tekið samkvæmt leiðbeiningum.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Gleymist að taka litaða töflu þá er best að taka töfluna strax og munað er eftir henni. Næsta tafla er svo tekin á venjulegum tíma. Líði fleiri en 36 klst. milli inntöku taflna þá er getnaðarvörnin ekki lengur örugg. Aðra getnaðarvörn þarf þá að nota samtímis töflunum næstu 9 dagana. Sjá nánar í leiðbeiningum sem fylgja lyfinu. Ef gleymist að taka einhverja af síðustu 7 ljósgulu töflunum, þ.e. töflur 18-24, skal farga töfluspjaldinu og byrja á nýju töfluspjaldi. Ef gleymist að taka dimmrauðu töflurnar, þ.e. töflur 25 og 26, skal taka töfluna um leið og munað er eftir henni. Næsta tafla er svo tekin á venjulegum tíma. Ekki er þörf á að nota aðra getnaðarvörn ef þessar töflur gleymast. Ef gleymist að taka síðustu 2 hvítu töflurnar þá skal henda þeirri töflu sem gleymdist og halda svo áfram að taka töflurnar á venjulegum tíma.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Hætta má töku getnaðarvarnarlyfja hvenær sem er.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða, en ráðlegt er að fara reglulega í eftirlit hjá lækni. Ákveðið nánar í samráði við lækni.


Aukaverkanir

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Bólga eða verkir í fótum eða nára, verkur fyrir brjósti      
Eymsli í brjóstum          
Gula, mjög mikill kláði      
Hækkaður eða lækkaður blóðþrýstingur          
Höfuðverkur, kviðverkir          
Mæði, mjög mikill höfuðverkur, sjóntruflanir      
Truflanir á tíðablæðingum          
Þrymlabólur          
Þyngdaraukning          

Milliverkanir

Jóhannesarjurt og ginseng geta haft áhrif á virkni lyfsins. Auk þess geta getnaðarvarnartöflur minnkað sykurþol og aukið þörf sykursjúkra einstaklinga fyrir insúlín eða önnur sykursýkislyf. Á meðan verið er að taka lyf tímabundið sem geta haft áhrif á virkni lyfsins skal nota aðra getnaðarvörn sem inniheldur ekki hormón til viðbótar þ.e. á meðan hitt lyfið er tekið og í 9 daga eftir að töku þess hefur verið hætt.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með bólgusjúkdóm í þörmum
  • þú sért með háan blóðþrýsting, hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með mígreni
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með rauða úlfa (lupus)
  • þú sért með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi
  • þú sért með sykursýki
  • þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
  • þú reykir
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú hafir fengið hjartaáfall eða heilablóðfall
  • þú sért með eða hefur fengið brisbólgu
  • þú sért með blæðingar frá fæðingarvegi af óþekktum ástæðum

Meðganga:
Lyfið á ekki að nota á meðgöngu. Ef þú verður þunguð á meðan lyfið er tekið skaltu hætta töku þess strax og hafa samband við lækni.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið. Samsettar getnaðarvarnartöflur geta dregið úr magni og gæðum brjóstamjólkur.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Lyfið er eingöngu ætlað konum á barneignaraldri.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturhæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á virkni lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Reykingar auka hættuna á aukaverkunum, s.s. blóðtappa af völdum estrógena.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.