Sertral

Geðdeyfðarlyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Sertralín

Markaðsleyfishafi: Teva B.V. | Skráð: 1. nóvember, 2000

Sertral er geðdeyfðarlyf. Það tilheyrir nýlegum flokki geðdeyfðarlyfja sem hafa sérhæfð áhrif á virkni taugaboðefnisins serótóníns í heila. Talið er að breytingar á starfsemi taugafrumna sem nota þetta boðefni séu hluti af orsökum geðdeyfðar. Eldri geðdeyfðarlyf eru ekki eins sérhæfð og hafa áhrif á fleiri boðefni. Sertralín, virka efnið í Sertral, og skyld lyf virðast hafa svipaða virkni og eldri lyfin á einkenni geðdeyfðar, þau bæta skap, auka líkamlega virkni, bæta matarlyst og auka áhuga á daglegu lífi. Nýrri lyfin hafa ekki eins róandi verkun og eru laus við margar alvarlegar aukaverkanir eldri lyfjanna. Þau valda heldur ekki alvarlegum eitrunareinkennum við ofskömmtun. Sertral er notað við geðdeyfð, þráhyggju- og áráttusýki (obsessive-compulsive disorder), ofsahræðslu (panic disorder) með eða án víðáttufælni (agarophobia), félagsfælni og kvíða í kjölfar áfalls.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
25-200 mg í senn einu sinni á dag með mat.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Um 2 vikur.

Verkunartími:
Ekki að fullu þekktur.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Slepptu þeim sem gleymdist og haltu áfram að taka lyfið eins og venjulega eftir það. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Sjúkdómseinkenni geta aftur komið fram þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir hafa verið stórir skammtar eða vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða.


Aukaverkanir

Algengasta aukaverkun lyfsins er ógleði. Aukaverkanirnar eru flestar skammtaháðar, þ.e. líklegra er að þær komi fram eftir því sem skammtar eru stærri, og verstar í upphafi meðferðar en mildast með tímanum.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Brjóstastækkun karlmanna          
Gula          
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir        
Hjartsláttarónot, verkur fyrir brjósti          
Hraður hjartsláttur, hár blóðþrýstingur          
Hreyfitruflanir, skjálfti          
Höfuðverkur, sundl, þreyta          
Kviðverkir, hægðatregða, uppköst          
Lystarleysi          
Munnþurrkur, aukin svitamyndun, hitasteypur          
Ógleði, niðurgangur, meltingartruflanir          
Óreglulegar tíðablæðingar          
Skapgerðarbreytingar          
Suð fyrir eyrum, breytt húðskyn og sjón          
Svefntruflanir, svefnhöfgi          
Truflun á kynlífi          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      

Milliverkanir

Jóhannesarjurt og ginkgo geta haft áhrif á virkni lyfsins. Hjá sjúklingum með sykursýki getur meðferð með SSRI lyfjum haft áhrif á sykurstjórnun (blóðsykurslækkun eða blóðsykurshækkun). Nauðsynlegt getur verið að aðlaga skammta af insúlíni og/eða sykursýkislyfjum til inntöku.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með hjartasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með sykursýki
  • þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Upplýsingar skortir til þess að meta áhættu fyrir barnið ef mjólkandi móðir tekur lyfið.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið getur skert viðbragðsflýti. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Áhrif áfengis á lyfið eru ekki að fullu þekkt. Ekki er æskilegt að neyta áfengis meðan lyfið er tekið. Almennt er mælt gegn því að neyta áfengis samhliða meðferð með geðdeyfðarlyfjum.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.