Spirix

Þvagræsilyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Spírónólaktón

Markaðsleyfishafi: Orifarm Generics

Spirix, sem inniheldur virka efnið spírónólaktón, er þvagræsilyf með blóðþrýstingslækkandi verkun. Þvagræsilyf geta raskað hlutfalli natríum- og kalíumsalta sem skiljast út úr líkamanum með þvagi. Spírónólaktón er kalíumsparandi, það minnkar útskilnað kalíums og eykur útskilnað natríums. Lyfið er notað við vökvasöfnun (bjúgi) vegna hjarta-, lifrar- eða nýrnasjúkdóma og við háþrýstingi. Það er líka notað við svokölluðu aldósterónheilkenni og sem stuðningsmeðferð við langvinnri hjartabilun. Spírónólaktón er oftast notað með öðrum þvagræsilyfjum en sjaldan eitt sér. Ólíkt mörgum öðrum þvagræsilyfjum hefur spírónólaktón ekki áhrif á þvagsýrumagn í blóði og eykur ekki blóðsykur hjá sykursjúkum.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
Fullorðnir: 25-100 mg í senn 1-2svar á dag. Börn: 1½-3 mg á hvert kg líkamsþyngdar á dag. Töflurnar takist með vatnsglasi.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
2-4 klst.

Verkunartími:
2-3 dagar.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Forðastu mat sem inniheldur mikið kalíum, t.d. þurrkaða ávexti og svokallað heilsusalt.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Ekki er ástæða til að hafa áhyggjur ef einn skammtur gleymist. Taka ætti skammtinn þegar munað er eftir honum, en fyrir kvöldmat þar sem lyfið getur kallað á tíð þvaglát um nóttina. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni vegna hættu á því að einkenni sjúkdómsins komi aftur fram.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Æskilegast er að komast hjá langtímanotkun, sérstaklega hjá ungum sjúklingum. Ef lyfið er notað í langan tíma þarf að fylgjast reglulega með nýrnastarfsemi og jafnvægi salta í líkamanum.


Aukaverkanir

Tíðni aukaverkana eykst til muna ef teknir eru stórir skammtar af lyfinu. Við skammta sem eru 100 mg á dag eða minni er tíðni aukaverkana lítil.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Brjóstastækkun karlmanna          
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir        
Höfuðverkur, þreyta          
Minni áhugi á kynlífi og/eða skert kyngeta          
Niðurgangur          
Ógleði          
Óreglulegar tíðablæðingar          
Rugl          
Útbrot, kláði          

Milliverkanir

Bólgueyðandi gigtarlyf (NSAID) geta dregið úr natríumræsandi áhrifum þvagræsilyfja.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun
  • þú sért með Addisonssjúkdóm
  • þú sért með efnaskiptasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með þvagsýrugigt
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Engin þekkt áhætta er af notkun lyfsins á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.

Börn:
Skammtar eru háðir líkamsþyngd.

Eldra fólk:
Auknar líkur eru á aukaverkunum, minni skammtar eru oft notaðir.

Akstur:
Lyfið getur valdið syfju. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Veldur einnig auknum vökvaútskilnaði og því eru meiri líkur á vökvaskorti og timburmönnum. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:
Bannað í og utan keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.