Voltaren

Lyf til staðbundinnar notkunar við lið- og vöðvaverkjum | Verðflokkur: 0 | Lausasölulyf

Virkt innihaldsefni: Díklófenak_

Markaðsleyfishafi: GlaxoSmithKline | Skráð: 1. október, 2004

Voltaren hlaup inniheldur virka efnið díklófenak sem er bólgueyðandi efni með verkjastillandi og hitalækkandi verkun. Það dregur úr myndun prostaglandínefna í líkamanum, en þau valda m.a. bólgumyndun. Voltaren er notað staðbundið á húð við álags- og íþróttameiðslum eins og vöðva- og liðverkjum, tognunum og bólgum. Burðarefni hlaupsins hefur auk þess kælandi áhrif. Kostir þess að nota lyfið staðbundið á húð í stað þess að taka lyfið inn eru m.a. þeir að mun minni líkur eru á aukaverkunum sem og milliverkunum við önnur lyf.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Útvortis hlaup.

Venjulegar skammtastærðir:
Borið á aum eða bólgin svæði 3-4 sinnum á dag.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Innan við 1-2 klst.

Verkunartími:
6-8 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Sjúkdómurinn getur versnað þegar hætt er að nota lyfið. Ekki hætta notkun lyfsins nema í samráði við lækni. Ef lyfið er notað við tilfallandi verk má hætta notkun lyfsins þegar ekki er lengur þörf fyrir það.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef notaðir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skaltu hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Lyfið er ekki notað í langan tíma í einu og venjulega ekki lengur en í 2 vikur vegna vöðva- og liðmeiðsla og ekki lengur en í 3 vikur vegna gigtarverkja.


Aukaverkanir

Væg húðerting er algengasta aukaverkun lyfsins. Eins og almennt gildir um lausasölulyf eru aukaverkanir sjaldgæfar þegar farið er eftir reglum um notkun og venjulegar skammtastærðir eru notaðar.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Útbrot, kláði          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      

Milliverkanir

Litlar líkur eru á milliverkunum við önnur lyf vegna þess að Voltaren frásogast að mjög litlu leyti í gegnum húðina og inn í blóðrás líkamans.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með astma
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum, sérstaklega bólgueyðandi gigtarlyfjum
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur. Ekki má nota lyfið á síðustu mánuðum meðgöngu. Voltaren getur valdið því að erfiðara reynist að verða barnshafandi.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið. Ekki skal nota lyfið á stór húðsvæði lengur en 1 viku í senn.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 14 ára.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Áfengi hefur ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.