Yasmin 28

Getnaðarvörn | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Dróspírenón Etinýlestradíól

Markaðsleyfishafi: Bayer Pharma | Skráð: 1. október, 2007

Yasmin 28 er getnaðarvarnarlyf. Það flokkast til einfasa, samsettra, lágskammta getnaðarvarnarlyfja og inniheldur tvö virk efni (hormón), dróspírenón og etinýlestradíól. Dróspírenón er samtengt hormón og hefur sömu áhrif í líkamanum og kvenhormónið prógesterón. Etinýlestradíól virkar eins og kvenhormónið estradíól, en verkunartími þess er þó lengri þegar það er tekið inn. Allar töflurnar innihalda sama magn af hormónum. Getnaðarvörn lyfsins felst fyrst og fremst í því að koma í veg fyrir egglos. Jafnframt þessu hafa hormónin áhrif á slímmyndun í leghálsinum með þeim afleiðingum að sæðisfrumur komast síður í legið og erfitt er fyrir frjóvgað egg að festast í slímhúð legsins. Munurinn á Yasmin og Yasmin 28 er sá að Yasmin inniheldur 21 töflu í spjaldi og á milli spjaldanna á að gera 1 viku hlé þar sem Yasmin 28 inniheldur 28 töflur í spjaldi og ekkert hlé á að gera. Þó ber að athuga að síðustu 7 töflurnar í síðarnefnda spjaldinu innihalda óvirkt efni.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
Yasmin: Fyrsta taflan er tekin á fyrsta degi tíðablæðinga og síðan er ein tafla tekin daglega, helst alltaf á sama tíma dags, samfleytt í 21 dag. Eftir 21 dag er gert hlé í 7 daga og verða þá blæðingar. Að 7 dögum liðnum er byrjað á næsta spjaldi, hvort sem tíðablæðingum er lokið eða ekki. Yasmin 28: Sama notkun og fyrir Yasmin, nema ekkert töfluhlé er gert heldur eru hvítu töflurnar teknar síðustu 7 dagana og á þeim tíma verða tíðablæðingar. Þegar spjaldið er búið er strax byrjað á næsta spjaldi daginn eftir. Hver tafla inniheldur 3 mg dróspírenón og 30 míkrógrömm etinýlestradíól, nema síðustu 7 töflurnar í Yasmin 28, en þær innihalda óvirkt efni.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Lyfið veitir örugga getnaðarvörn strax frá fyrsta degi ef töflurnar eru teknar samkvæmt leiðbeiningum.

Verkunartími:
Lyfið veitir örugga getnaðarvörn á meðan það er tekið samkvæmt leiðbeiningum.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin. Samsettar getnaðarvarnatöflur geta þó hindrað útskilnað koffeins úr líkamanum. Æskilegt er að draga úr koffeinneyslu á meðan lyfið er tekið.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Gleymist að taka töflu þá er best að taka töfluna strax og munað er eftir henni. Næsta tafla er svo tekin á venjulegum tíma. Líði fleiri en 36 klst. milli inntöku taflna þá er getnaðarvörnin ekki lengur örugg. Aðra getnaðarvörn þarf þá að nota samtímis töflunum næstu 7 dagana. Sjá nánar í leiðbeiningum sem fylgja lyfinu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Hætta má töku getnaðarvarnarlyfja hvenær sem hentar.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða, en ráðlegt er að fara reglulega í eftirlit hjá lækni. Ákveðið nánar í samráði við lækni.


Aukaverkanir

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Bólga eða verkir í fótum eða nára, verkur fyrir brjósti      
Gula, mjög mikill kláði      
Hækkaður eða lækkaður blóðþrýstingur          
Höfuðverkur, mígreni, ógleði          
Mæði, mjög mikill höfuðverkur, sjóntruflanir      
Sveppasýking í leggöngum, útferð          
Truflanir á blæðingum, verkir í brjóstum          
Þunglyndi          

Milliverkanir

Jóhannesarjurt og ginseng geta haft áhrif á virkni lyfsins. Auk þess geta getnaðarvarnartöflur minnkað sykurþol og aukið þörf sykursjúkra einstaklinga fyrir insúlín eða önnur sykursýkislyf.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • einhver í ættinni sé með sykursýki, hjarta- eða æðasjúkdóm
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með bólgusjúkdóm í þörmum
  • þú sért með háan blóðþrýsting, hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með mígreni
  • þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
  • þú sért með rauða úlfa (lupus)
  • þú sért með sykursýki
  • þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
  • þú reykir
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með eða hefur fengið brisbólgu
  • þú sért með blæðingar frá fæðingarvegi af óþekktum ástæðum

Meðganga:
Lyfið á ekki að nota á meðgöngu. Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum. Hætta á því að lyfið hafi áhrif á fóstur er þó talin hverfandi í þeim skömmtum sem það er notað.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið. Samsettar getnaðarvarnartöflur geta dregið úr magni og gæðum brjóstamjólkur.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Lyfið er eingöngu ætlað konum á barneignaraldri.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Reykingar auka hættuna á aukaverkunum, s.s. blóðtappa af völdum estrógena.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.