Arcoxia

Bólgueyðandi lyf og gigtarlyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Etorícoxíb

Markaðsleyfishafi: N. V. Organon | Skráð: 1. október, 2002

Arcoxia er gigtarlyf með bólgueyðandi, verkjastillandi og hitalækkandi áhrif. Eins og mörg eldri gigtarlyf dregur virka efnið etorícoxíb úr myndun prostaglandína í líkamanum, en prostaglandín hafa víðtæk áhrif í líkamanum og stjórna meðal annars bólgumyndun. Etorícoxíb er þó sértækara en eldri lyfin og dregur ekki eins víða úr myndun prostaglandína. Með sérhæfninni er dregið úr aukaverkunum lyfsins, sérstaklega hættu á magasári, á meðan bólgueyðandi og verkjastillandi áhrif eru sambærileg við eldri lyfin. Lyfið er notað við einkennum af völdum slitgigtar, iktsýki og hryggikt og við verkjum og bólgueinkennum, tengdum bráðri þvagsýrugigt.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
30-120 mg í senn einu sinni á dag.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Misjafnt eftir sjúkdómsástandi. Slitgigt, iktsýki og hryggikt: Áhrif koma fram á öðrum degi meðferðar. Þvagsýrugigtarköst: Verkjastillandi verkun kemur fram um 4 klukkustundum eftir gjöf. Verkur eftir tannaðgerð: Verkjastillandi verkun kemur fram um 30 mínútum eftir gjöf.

Verkunartími:
Misjafnt eftir sjúkdómsástandi.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin, en lyfið virkar heldur fyrr ef það er tekið á fastandi maga.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Einkenni geta versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni strax.

Langtímanotkun:
Langtímanotkun lyfsins ætti að vera án vandkvæða, en ráðlegt er að fara reglulega í skoðun til læknis ef þú þarft að nota lyfið lengur en í nokkra mánuði í senn.


Aukaverkanir

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Bjúgur, hár blóðþrýstingur          
Gula          
Hjartsláttarónot          
Hjartsláttartruflanir        
Höfuðverkur, svimi          
Kviðverkir, ógleði, niðurgangur          
Meltingartruflanir, vindgangur, brjóstsviði          
Rugl, ofskynjanir          
Svartar eða blóðugar hægðir, blóð í þvagi        
Sýkingar          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      
Verkur fyrir brjósti, mæði        
Þreyta, máttleysi og flensulík einkenni          
Flekkblæðingar í húð          

Milliverkanir

Lyfið getur dregið úr verkun þvagræsilyfja og annarra blóðþrýstingslækkandi lyfja.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með hjartasjúkdóm eða háan blóðþrýsting
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með magabólgur eða bólgusjúkdóm í þörmum
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með sykursýki
  • þú reykir
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 16 ára.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið getur valdið svima eða syfju. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Getur aukið ertandi áhrif lyfsins á magaslímhúð.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.