Celebra

Bólgueyðandi lyf og gigtarlyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Celekoxíb

Markaðsleyfishafi: Pfizer | Skráð: 1. júlí, 2002

Celebra er nýlegt gigtarlyf með bólgueyðandi, verkjastillandi og hitalækkandi áhrif. Eins og önnur bólgueyðandi gigtarlyf dregur virka efnið celekoxíb úr myndun prostaglandína í líkamanum, en prostaglandín hafa víðtæk áhrif í líkamanum og stjórna meðal annars bólgumyndun. Celekoxíb er sértækara en eldri lyfin og það dregur ekki eins víða úr myndun prostaglandína. Með sérhæfninni er dregið úr aukaverkunum lyfsins, sérstaklega hættu á magasári. Bólgueyðandi og verkjastillandi áhrif þess eru sambærileg við eldri lyfin. Lyfið er notað við einkennum af völdum slitgigtar og iktsýki.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Hylki til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
100-200 mg í senn 1-2svar á dag. Hylkin gleypist heil.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
30-60 mín. Verkun kemur seinna fram ef lyfið er tekið með mat.

Verkunartími:
12-24 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulegir ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða vart verður við óvenjuleg einkenni skal strax hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Langtímanotkun lyfsins ætti að vera án vandkvæða. Þó er ráðlegt að fara reglulega í skoðun til læknis ef þú þarft að nota lyfið lengur en í nokkra mánuði í senn.


Aukaverkanir

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Bjúgur í útlimum          
Gula          
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir        
Hjartsláttarónot, háþrýstingur        
Kviðverkir, niðurgangur, meltingartruflanir, vindgangur          
Ósamhæfðar hreyfingar          
Svartar eða blóðugar hægðir, blóð í þvagi        
Svimi, svefnleysi          
Sýkingar í efri öndunarfærum          
Útbrot          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með magasár
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með sykursýki
  • þú reykir
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Í upphafi skal gefa minni skammta (200 mg á sólarhring), má svo auka í 400 mg á sólarhring.

Akstur:
Lyfið getur valdið svima eða syfju. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Getur aukið ertandi áhrif lyfsins á magaslímhúð.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.