Centyl mite med kaliumklorid

Þvagræsilyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Bendróflúmetíazíð Kalíum

Markaðsleyfishafi: Karo Pharma | Skráð: 1. maí, 1999

Centyl mite med kaliumklorid inniheldur virku efnin bendróflúmetíazíð og kalíum. Það er þvagræsilyf með blóðþrýstingslækkandi verkun. Bendróflúmetíazíð eykur þvagmyndun í nýrum og losar líkamann við vökva. Samfara aukinni vatnslosun eykur bendróflúmetíazíð útskilnað margra salta, aðallega kalíums. Bendróflúmetíazíð er í samsetningu með kalíumi, en með því móti eru minni líkur á því að lyfið valdi kalíumskorti. Bendróflúmetíazíð er notað við bjúg, sem stafar af ýmsum orsökum, og háum blóðþrýstingi. Það dregur úr þvagmyndun hjá sjúklingum með flóðmigu (diabetes insipidus), öfugt við áhrif lyfsins á aðra sjúklinga, og er því oft gefið í þessu ástandi. Lyfið dregur ennfremur úr útskilnaði kalsíums um nýru, og er þess vegna notað til að fyrirbyggja endurtekna myndun á kalsíumnýrnasteinum.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
1,25-5 mg í senn 1-2svar á dag. Töflurnar gleypist heilar. Hver tafla inniheldur 1,25 mg bendróflúmetíazíð og 573 mg kalíum.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Innan við 2 klst.

Verkunartími:
6-12 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Ekki er ástæða til að hafa áhyggjur gleymist einn skammtur. Best er að taka skammtinn þegar munað er eftir honum. Þó þykir óæskilegt að taka lyfið að kvöldi þar sem það getur kallað á tíð þvaglát um nóttina. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Einkenni sjúkdóms geta aftur komið fram þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Yfirleitt án vandkvæða. Æskilegt er að fylgst sé reglulega með nýrnastarfsemi og jafnvægi salta í líkamanum.


Aukaverkanir

Margar aukaverkanir lyfsins stafa af kalíumtapi, en hægt er að fyrirbyggja þær með því að taka inn kalíum með lyfinu.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir        
Höfuðverkur, svimi, þróttleysi          
Útbrot, kláði          

Milliverkanir

Við skert sykurþol getur þurft að breyta skömmtum sykursýkilyfja. Samtímis notkun náttúrulyfsins ginkgo getur valdið hærri blóðþrýstingi.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með rauða úlfa (lupus)
  • þú sért með sykursýki
  • þú hafir fengið þvagsýrugigt
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Minni skammtar eru oft notaðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Veldur einnig auknum vökvaútskilnaði og því eru meiri líkur á vökvaskorti og timburmönnum. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:
Bannað í og utan keppni.

Annað:
 


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.