Cerazette

Getnaðarvörn | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Desógestrel

Markaðsleyfishafi: N. V. Organon | Skráð: 1. janúar, 2001

Cerazette er getnaðarvörn. Lyfið inniheldur virka efnið desógestrel sem er samtengt hormón sem hefur sömu áhrif á líkamann og kvenhormónið prógesterón. Lyfið hentar helst konum sem eru með barn á brjósti. Desógestrel hindrar egglos og veldur líka breytingum á slímhúð legsins á þá leið að frjóvguð eggfruma nær síður að hreiðra þar um sig. Slímið í leghálsinum þykknar og sáðfrumur komast fyrir vikið ekki greiðlega upp leghálsinn.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
Fyrsta taflan er tekin á fyrsta degi tíðablæðinga og síðan er ein tafla tekin daglega, helst alltaf á sama tíma dags. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi. Hver tafla inniheldur 75 míkrógrömm desógestrel.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Lyfið veitir örugga getnaðarvörn strax frá fyrsta degi ef töflurnar eru teknar samkvæmt leiðbeiningum.

Verkunartími:
Lyfið veitir örugga getnaðarvörn á meðan það er tekið samkvæmt leiðbeiningum.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin þörf að breyta mataræði

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Gleymist að taka töflu þá er best að taka töfluna strax og munað er eftir henni. Næsta tafla er svo tekin á venjulegum tíma. Líði fleiri en 36 klst. milli inntöku taflna þá er getnaðarvörnin ekki lengur örugg. Aðra getnaðarvörn þarf þá að nota samtímis töflunum næstu 7 dagana. Sjá nánar í leiðbeiningum sem fylgja lyfinu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Hætta má töku getnaðarvarnalyfja hvenær sem hentar.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða en ráðlegt er að fara reglulega í skoðun. Ákveðið nánar í samráði við lækni.


Aukaverkanir

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Bólga eða verkir í fótum eða nára, verkur fyrir brjósti      
Bólur í húð          
Eymsli í brjóstum          
Gula, mjög mikill kláði      
Minnkuð kynhvöt          
Mæði, mjög mikill höfuðverkur, sjóntruflanir      
Ógleði, höfuðverkur          
Óreglulegar tíðablæðingar          
Skapgerðarbreytingar          
Þyngdaraukning          

Milliverkanir

Jóhannesarjurt og ginseng geta haft áhrif á virkni lyfsins. Auk þess geta getnaðarvarnartöflur minnkað sykurþol og aukið þörf sykursjúkra einstaklinga fyrir insúlín eða önnur sykursýkislyf.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun
  • þú sért með flogaveiki
  • þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með sykursýki
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með blæðingar frá fæðingarvegi af óþekktum ástæðum

Meðganga:
Lyfið á ekki að nota á meðgöngu. Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum. Hætta á því að lyfið hafi áhrif á fóstur er þó talin hverfandi í þeim skömmtum sem það er notað.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Lyfið er eingöngu ætlað konum á barneignaraldri.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.