Cozaar Comp Forte

Lyf með verkun á renínangíótensín-kerfið | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Hýdróklórtíazíð Lósartan

Markaðsleyfishafi: N. V. Organon | Skráð: 1. júní, 2007

Cozaar Comp Forte inniheldur tvö virk efni, lósartan og hýdróklórtíazíð. Það er notað við háum blóðþrýstingi og til að minnka líkur á hjarta- og æðasjúkdómum, þegar nægilegur árangur hefur ekki náðst með einu lyfi og nauðsynlegt er að nota tvö lyf. Lósartan er hjartalyf sem tilheyrir flokki lyfja sem kallast angíótensín II blokkar. Það hindrar áhrif angíótensíns II, eins öflugasta æðaþrengjandi efnis í líkamanum. Auk æðaþrengjandi áhrifa minnkar angíótensín II vatnsútskilnað í nýrum, eykur rúmmál blóðs og stuðlar frekar að því að blóðþrýstingur hækkar. Lósartan lækkar því blóðþrýsting með því að víkka út æðar og skilja vatn út úr líkamanum. Lósartan veldur færri aukaverkunum en þau lyf sem hindra myndun angíótensíns II og þolist yfirleitt betur. Hýdróklórtíazíð flokkast til þvagræsilyfja. Lyfið lækkar blóðþrýsting, eykur einnig þvagmyndun í nýrum og losar líkamann við vökva. Samfara aukinni vatnslosun veldur hýdróklórtíazíð útskilnaði margra salta, aðallega kalíums. Í lyfinu Cozaar Comp Forte eru þessi tvö lyf gefin saman til þess að ná fram enn meiri lækkun á blóðþrýstingi en mögulegt væri þegar lyfin eru gefin hvort í sínu lagi.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
1 tafla á dag, helst alltaf á sama tíma dags. Hver tafla inniheldur 100 mg lósartan og 25 mg hýdróklórtíazíð. Töflurnar gleypist með vatnsglasi.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Almennt nást hámarks blóðþrýstingslækkandi áhrif innan 3ja vikna frá upphafi meðferðar.

Verkunartími:
A.m.k. 24 klst. eftir stakan skammt.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Yfirleitt án vandkvæða. Æskilegt er að fylgst sé reglulega með nýrnastarfsemi og jafnvægi salta í líkamanum.


Aukaverkanir

Aukaverkanir lyfsins eru almennt vægar og tímabundnar. Algengasta aukaverkunin er svimi og kemur fram hjá um 2-3% þeirra sem taka lyfið.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Gula          
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir        
Hjartsláttartruflanir, hraður hjartsláttur        
Hósti          
Höfuðverkur, svimi, svefnleysi          
Sýking í efri öndunarvegi          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      
Verkir          
Verkur fyrir brjósti        
Þreyta, þróttleysi          
Kviðverkir, meltingartruflanir, niðurgangur, ógleði          

Milliverkanir

Önnur blóðþrýstingslækkandi lyf geta aukið blóðþrýstingslækkandi áhrif lyfsins. Samtímis notkun náttúrulyfsins ginkgo getur valdið hærri blóðþrýstingi.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með aðra hjartasjúkdóma
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
  • þú sért með rauða úlfa (lupus)
  • þú sért með sykursýki
  • þú hafir fengið þvagsýrugigt
  • þú hafir nýlega fengið mikinn niðurgang eða uppköst
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú hafir sögu um ofsabjúg

Meðganga:
Lyfið eykur líkur á fósturskaða sé það notað á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Minni skammtar eru oft notaðir.

Akstur:
Lyfið getur valdið svima og þar með haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Áfengi getur haft óæskileg áhrif á blóðþrýsting og hjartsláttarhraða, og aukið líkur á aukaverkunum lyfsins. Ekki er æskilegt að neyta áfengis meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:
Bannað í og utan keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.