Estrogel

Kvenhormón | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Estradíól

Markaðsleyfishafi: Besins | Skráð: 1. mars, 2000

Estradíól er hormón sem líkaminn framleiðir. Það er gefið eitt og sér, í hormónameðferð eftir tíðahvörf eða eftir brottnám eggjastokka. Eftir tíðahvörf hætta eggjastokkarnir að framleiða estradíól og prógesterón. Hormónameðferðin miðast að því að vega skortinn upp sem verður og að slá á einkenni sem eru samfara honum. Hormónameðferð eftir tíðahvörf minnkar líkur á beinþynningu þar sem estradíól heldur áfram eðlilegu viðhaldi beina.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Útvortis hlaup.

Venjulegar skammtastærðir:
2-4 skammtar af hlaupi eru bornir á húð einu sinni á dag. Hver skammtur inniheldur 0,75 mg af estradíóli.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Ekki að fullu þekkt.

Verkunartími:
Ekki að fullu þekktur.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Hætta skal uppbótarmeðferð eftir tíðahvörf í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef stórir skammtar eru notaðir eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða, en ráðlegt er að fara reglulega í skoðun. Nánar ákveðið í samráði við lækni.


Aukaverkanir

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Bjúgur, þyngdaraukning          
Breytingar í brjóstum        
Eymsli í brjóstum          
Gula          
Háþrýstingur          
Höfuðverkur, pirringur          
Magaverkir, uppþemba          
Máttleysi í fótum          
Óeðlilegar blæðingar          
Ógleði og uppköst          
Verkur í fótum, nára eða fyrir brjósti        

Milliverkanir

Lyf sem auka áhrif lifrarensíma, t.d. sum flogaveikilyf eða sýklalyf, geta dregið úr virkni lyfsins. Jóhannesarjurt og ginseng geta haft áhrif á virkni lyfsins.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • einhver í ættinni sé með sykursýki, hjarta- eða æðasjúkdóm
  • grunur leiki á um þungun
  • þú sért með astma
  • þú sért með háan blóðþrýsting, hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með mígreni
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með rauða úlfa (lupus)
  • þú sért með sykursýki
  • þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með blæðingar frá fæðingarvegi af óþekktum ástæðum

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Lyfið er aðeins notað eftir tíðahvörf.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Lyfið hentar vel eldri konum.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.