Klomipramin Mylan

Geðdeyfðarlyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Klómípramín

Markaðsleyfishafi: Mylan | Skráð: 1. október, 1992

Klómípramín er geðdeyfðarlyf. Það tilheyrir flokki þríhringlaga geðdeyfðarlyfja, sem eru svo nefnd vegna efnafræðilegrar byggingar sinnar. Lyf í þessum flokki voru þau fyrstu sem notuð voru við geðdeyfð en verkunarmáti og aukaverkanir þeirra flestra eru svipaðar. Þau hafa áhrif á flest einkenni geðdeyfðar, bæta skap, auka líkamlega virkni, bæta matarlyst og auka áhuga á daglegu lífi. Þessi áhrif koma aðeins fram hjá sjúklingum með geðdeyfð en sjást ekki ef heilbrigðir taka lyfin. Helstu gallar þríhringlaga geðdeyfðarlyfjanna eru þeir að aukaverkanir eru nokkuð tíðar og að töluverð hætta er á eiturverkunum ef mjög stórir skammtar eru teknir. Auk verkunar á geðdeyfð hefur klómípramín kvíðastillandi áhrif en það hefur minni róandi áhrif en flest önnur lyf í þessum flokki. Það er notað við geðdeyfð og kvíðatengdu þunglyndi og hefur einnig notagildi við þráhyggjusýki (obsessive-compulsive disorder) og sem hjálparmeðferð við langvarandi verkjum.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
Fullorðnir: 25-150 mg á dag. Börn: 10-50 mg á dag.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Geðdeyfð: 2-3 vikur. Þráhyggjusýki: 4-10 vikur.

Verkunartími:
Ekki að fullu þekktur.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Ef lyfið er tekið í einum skammti að kvöldi skaltu ekki taka skammtinn morguninn eftir nema í samráði við lækni. Í öðrum tilvikum skaltu taka lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Sjúkdómseinkenni geta aftur komið fram þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Leitaðu læknis í öllum tilvikum. Ef vart verður við einkenni eins og hjartsláttarónot, krampa eða skerta meðvitund skal leita neyðarhjálpar þegar í stað.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða. Ef munnþurrkur af völdum lyfsins er viðvarandi getur það skaðað tannhold og slímhúð í munninum.


Aukaverkanir

Algengasta aukaverkunin er munnþurrkur, sem allt að 50% þeirra sem taka lyfið finna fyrir. Aukaverkanir lyfsins eru tíðari eftir því sem skammtar eru stærri, eru verstar í upphafi meðferðar en mildast eða hverfa með áframhaldandi notkun.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Aukin matarlyst, þyngdaraukning          
Breytt bragðskyn          
Brjóstastækkun, mjólkurflæði          
Gula          
Hitakóf, svitamyndun          
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir        
Hjartsláttarónot          
Hreyfitruflanir, skjálfti, máltruflanir          
Höfuðverkur, sundl, svimi          
Krampar        
Meltingartruflanir, niðurgangur          
Munnþurrkur, hægðatregða          
Ógleði, uppköst, lystarleysi          
Sjóntruflanir          
Skapgerðarbreytingar, rugl, svefntruflanir          
Suð fyrir eyrum          
Truflanir á kynhvöt og kyngetu          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      
Þvaglátstruflanir          

Milliverkanir

Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur haft áhrif á virkni lyfsins.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með gláku eða hækkaðan augnþrýsting
  • þú sért með hjartasjúkdóm eða háan blóðþrýsting
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með of- eða vanvirkan skjaldkirtil
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með stækkaðan blöðruhálskirtil eða eigir erfitt með þvaglát
  • þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með langvarandi hægðatregðu

Meðganga:
Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.

Börn:
Minni skammtar eru notaðir.

Eldra fólk:
Aukin hætta er á aukaverkunum, minni skammtar eru notaðir.

Akstur:
Sumar aukaverkanir lyfsins geta skert aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Getur aukið sljóvgandi áhrif lyfsins. Almennt er mælt gegn því að neyta áfengis samhliða meðferð með geðdeyfðarlyfjum.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.