Laxoberal

Hægðalyf | Verðflokkur: 0 | Lausasölulyf

Virkt innihaldsefni: Natríumpicosúlfat

Markaðsleyfishafi: Opella Healthcare France SAS | Skráð: 1. september, 2008

Laxoberal dropar hafa hægðalosandi áhrif. Ástæður fyrir hægðatregðu geta verið ýmsar og má þar nefna of lítið magn af trefjum og vökva í fæðu, hreyfingarleysi, ýmsa sjúkdóma og lyf. Áhrifa Laxoberal gætir í ristlinum en þar örvar lyfið slímhúðina og þarmahreyfingarnar aukast. Þar með flýtir fyrir því að þarmarnir tæmast.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Dropar til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
Fullorðnir og börn eldri en 10 ára: 10-20 dropar á sólarhring. Börn 4-10 ára: 5-10 dropar á sólarhring. Börn yngri en 4 ára: 1 dropi á hver 2 kg líkamsþyngdar á sólarhring. Hver dropi inniheldur 0,5 mg natríumpicosúlfat.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
6-12 klst.

Verkunartími:
Verkun gengur yfir á tiltölulega stuttum tíma. Dropana skal taka að kvöldi til ef áhrifa er óskað morguninn eftir.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við eða undir stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Hætta má töku lyfsins þegar einkenni eru ekki lengur til staðar.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru mjög stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Lyfið er venjulega ekki ætlað til langtímanotkunar og þá aðeins samkvæmt læknisráði.


Aukaverkanir

Algengasta aukaverkun lyfsins er kviðverkir.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Kviðverkir, magaóþægindi, magakrampar          
Niðurgangur          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú hafir gengist undir skurðaðgerð á maga eða þörmum
  • þú sért með röskun á salt- eða vökvajafnvægi
  • þú sért með teppu eða bólgu í meltingarvegi

Meðganga:
Gæta skal varúðar. Reynsla af notkun lyfsins meðal þungaðra kvenna bendir ekki til skaðlegra áhrifa.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berist í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum nema samkvæmt læknisráði.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.