Madopar

Lyf við Parkinsonsjúkdómi | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Benserazíð Levódópa

Markaðsleyfishafi: Roche | Skráð: 1. júlí, 1974

Levódópa er notað við parkinsonsveiki og sjúkdómseinkennum líkum parkinson sem stafa ekki af völdum lyfja. Parkinsonsveiki orsakast af hrörnun taugafrumna, en lík sjúkdómseinkenni geta komið fram eftir heilaskaða, truflun á blóðflæði í heila eða sem aukaverkanir lyfja. Einkennin stafa af ójafnvægi milli taugaboðefnanna asetýlkólíns og dópamíns, þaðan sem samhæfingu hreyfinga er stjórnað í heila. Magn dópamíns minnkar og vægi asetýlkólíns verður þá hlutfallslega of mikið. Í parkinsonsveiki verður þetta vegna þess að taugafrumurnar hrörna sem framleiða dópamín. Levódópa umbreytist í dópamín í líkamanum og vegur með því upp ójafnvægið sem hefur náð að myndast. Margar aukaverkanir levódópa eru tilkomnar vegna áhrifa dópamíns utan miðtaugakerfisins, til dæmis á blóðþrýsting. Levódópa er hér í samsetningu með benserazíð, en það er efni sem dregur úr þessum aukaverkunum. Það hindrar umbrot levódópa í dópamín utan miðtaugakerfisins. Með því að nota þessa samsetningu er hægt að gefa mun minni skammt af levódópa en annars þyrfti.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur og hylki til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
62,5-125 mg í senn 3-6 sinnum á dag. Takist 30 mín. fyrir máltíð eða 1 klst. eftir máltíð með vatnsglasi. Hylkin gleypist heil. Má ekki tyggja þau.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Innan við 1 klst.

Verkunartími:
2-12 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef færri en 2 klst. eru til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni, annars er hætta á því að sjúkdómurinn versni. Ef töku lyfsins er hætt skyndilega getur það valdið mjög alvarlegum einkennum.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Ef of stór skammtur af lyfinu hefur verið notaður, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222). Hafið umbúðir lyfsins við höndina.

Langtímanotkun:
ukaverkanir lyfsins, svo sem ósjálfráðar hreyfingar, hreyfitregða og breytingar á andlegri líðan, getur komið fram við langtímanotkun. Þessar aukaverkanir má yfirleitt koma í veg fyrir eða gera þolanlegar með því að minnka skammta af levódópa.


Aukaverkanir

Lyfið getur valdið aukaverkunum en það gerist þó ekki hjá öllum, það á við um öll lyf. Yfir 1% einstaklinga sem eru meðhöndlaðir með lyfinu geta búsit við að fá aukaverkanir. Algengasta aukaverkun lyfsins er rugl (e. confusion). Aukaverkanir á meltingaveg, svo sem niðurgangur, uppköst, ógleði og lystarleysi kemur yfirleitt í upphafi meðferðar. Til að minnka árif á meltingarveg má taka lyfið inn með smá snarli sem er með litlu próteininnihald eða vökva eða með því að auka skammtinn hægt.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Breytingar á hegðun eða skapferli          
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir        
Hraður hjartsláttur, lágur blóðþrýstingur          
Lystarleysi          
Ógleði, uppköst, niðurgangur          
Ósjálfráðar hreyfingar          
Svefnleysi          
Útbrot, kláði          

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú hafir átt við einhver geðræn vandamál að stríða
  • þú sért með gláku
  • þú sért með hjarta-, lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Ekki má nota lyfið á meðgöngu. Konur á barneignaaldri verða að nota örugga getnaðarvörn meðan á meðferðinni stendur. Ef þungun á sér stað hjá konum sem taka lyfið skal stöðva meðferð samkvæmt ráðleggingum læknis.

Brjóstagjöf:
Ekki má nota lyfið meðan á brjóstagjöf stendur. Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Eldra fólk þolir síður stóra skammta af lyfinu.

Akstur:
Bæði sjúkdómurinn sjálfur og verkun lyfsins geta skert aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.