Naproxen-E Mylan

Bólgueyðandi lyf og gigtarlyf | Verðflokkur: G/0 | Lyfseðilsskylt. Heimilt er að selja takmarkað magn af lyfinu í lausasölu

Virkt innihaldsefni: Naproxen

Markaðsleyfishafi: Viatris Limited | Skráð: 1. júlí, 1993

Naproxen er bólgueyðandi lyf með verkjastillandi og hitalækkandi verkun. Naproxen dregur úr myndun prostaglandínefna í líkamanum, en þau valda m.a. bólgumyndun. Naproxen er notað við iktsýki, slitgigt, hryggikt, þvagsýrugigt, tíðaverkjum og bólgu og verkjum eftir áverka.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Sýruhjúptöflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
750-1000 mg á dag í 1-2 skömmtum. Töflurnar gleypist heilar.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Verkjastillandi áhrif koma fram á u.þ.b. 2 klst. Áhrif á þvagsýrugigt koma fram á 1-2 sólarhringum. Áhrif á liðagigt koma fram eftir u.þ.b. tvær vikur.

Verkunartími:
U.þ.b. 7 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Sjúkdómurinn getur versnað þegar hætt er að taka lyfið. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skaltu hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Við langtímanotkun getur lyfið valdið magasári og magablæðingu. Því gæti reynst nauðsynlegt að fara reglulega í eftirlit til læknis sé lyfið notað í langan tíma.


Aukaverkanir

Algengustu aukaverkanir lyfsins eru meltingaróþægindi og ógleði og koma fyrir hjá 10-30% þeirra sem taka lyfið.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Gula          
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir        
Höfuðverkur, svimi, þreyta          
Niðurgangur          
Ógleði, kviðverkir, brjóstsviði          
Suð fyrir eyrum          
Svartar eða blóðugar hægðir, blóð í þvagi        
Útbrot          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      

Milliverkanir

Náttúrulyfið ginkgo getur aukið blæðingahættu.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun
  • þú sért með hjartasjúkdóm eða háan blóðþrýsting
  • þú sért með lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með maga- eða skeifugarnarsár
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú hafir blæðingartilhneigingu
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur. Ekki má taka lyfið á síðustu mánuðum meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk en í venjulegum skömmtum er ólíklegt að það hafi áhrif á barnið.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Gæta skal varúðar ef stórir skammtar lyfsins eru notaðir.

Akstur:
Lyfið getur valdið svima og þreytu og þannig haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Getur aukið ertandi áhrif lyfsins á magaslímhúð.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.