Oropram

Geðdeyfðarlyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Cítalópram

Markaðsleyfishafi: Teva B.V. | Skráð: 3. janúar, 2022

Oropram er geðdeyfðarlyf. Það tilheyrir nýlegum flokki geðdeyfðarlyfja sem hafa sérhæfð áhrif á virkni taugaboðefnisins serótóníns í heila. Talið er að breytingar á starfsemi taugafrumna sem nota þetta boðefni séu hluti af orsökum geðdeyfðar. Eldri geðdeyfðarlyf eru ekki eins sérhæfð og hafa áhrif á fleiri boðefni. Cítalópram, virka efnið í Oropram, og skyld lyf virðast hafa svipaða virkni og eldri lyfin á einkenni geðdeyfðar, þau bæta skap, auka líkamlega virkni, bæta matarlyst og auka áhuga á daglegu lífi. Nýrri lyfin hafa þó ekki eins róandi verkun og eru laus við margar alvarlegar aukaverkanir eldri lyfjanna. Einnig er minni hætta á eitrunum af völdum nýrri lyfjanna. Aftur á móti er líklegra að cítalópram og skyld lyf valdi höfuðverk, svefntruflunum, minnkaðri kynhvöt eða kyngetu og ógleði. Flestar þessar aukaverkanir eru verstar í upphafi meðferðar en mildast með tímanum. Cítalópram er aðallega notað við geðdeyfð en getur einnig haft áhrif á ofsahræðslu (panic disorder).


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
10-40 mg á dag. Töflurnar gleypist með vatnsglasi.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
2-3 vikur.

Verkunartími:
Ekki að fullu þekktur.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Slepptu skammtinum sem gleymdist og haltu áfram að taka lyfið eins og venjulega eftir það. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Sjúkdómseinkenni geta aftur komið fram þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir hafa verið stórir skammtar eða vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða.


Aukaverkanir

Algengasta aukaverkun lyfsins er ógleði, sem kemur fram hjá um 7% sjúklinga. Flestar aukaverkanir lyfsins eru verstar í upphafi meðferðar en mildast með tímanum.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Aukin eða minnkuð matarlyst          
Blæðingatruflanir          
Breytt bragðskyn, aukin munnvatnsframleiðsla          
Hiti, hrollur          
Hraður hjartsláttur, hjartsláttarónot          
Höfuðverkur, svimi, þreyta          
Krampar        
Kviðverkir, hægðatregða          
Meltingartruflanir, vindgangur          
Minnkuð kynhvöt eða getuleysi          
Munnþurrkur, aukin svitamyndun          
Ógleði, uppköst, niðurgangur          
Sjóntruflanir          
Skjálfti          
Taugaveiklun, óróleiki, svefntruflanir          
Útbrot og mikill kláði          
Þyngdarbreytingar          

Milliverkanir

Jóhannesarjurt og ginkgo geta haft áhrif á virkni lyfsins. Hjá sjúklingum með sykursýki getur meðferð með SSRI lyfjum haft áhrif á sykurstjórnun (blóðsykurslækkun eða blóðsykurshækkun). Nauðsynlegt getur verið að aðlaga skammta af insúlíni og/eða sykursýkislyfjum til inntöku.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú hafir átt í erfiðleikum með þvaglát
  • þú sért með hjartasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Minni skammtar eru notaðir.

Akstur:
Lyfið getur dregið úr dómgreind og viðbragðsflýti. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Áhrif áfengis á lyfið eru ekki að fullu þekkt, því er óæskilegt að neyta áfengis meðan lyfið er tekið. Almennt er mælt gegn því að neyta áfengis samhliða meðferð með geðdeyfðarlyfjum.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
 


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.