Presmin

Lyf með verkun á renínangíótensín-kerfið | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Lósartan

Markaðsleyfishafi: Alvogen | Skráð: 1. febrúar, 2008

Presmin, sem inniheldur virka efnið lósartan, er hjartalyf. Það hindrar áhrif angíótensíns II, eins öflugasta æðaþrengjandi efnis í líkamanum. Auk æðaþrengjandi áhrifa minnkar angíótensín II vatnsútskilnað í nýrum, eykur rúmmál blóðs og stuðlar frekar að því að blóðþrýstingur hækkar. Lósartan lækkar því blóðþrýsting með því að víkka út æðar og skilja vatn út úr líkamanum. Presmin er notað við háþrýstingi, til að minnka líkur á hjarta- og æðasjúkdómum, við hjartabilun og getur einnig dregið úr nýrnaskemmdum hjá sjúklingum með sykursýki. Þegar þörf er á mikilli lækkun blóðþrýstings er lyfið gefið með þvagræsilyfjum, t.d. hýdróklórtíazíði. Lósartan veldur færri aukaverkunum en þau lyf sem hindra myndun á angíótensíni II og þolist yfirleitt betur.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
12,5-100 mg í senn einu sinni á dag. Töflurnar gleypist með vatnsglasi.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Hámarksverkun næst á 3-6 vikum.

Verkunartími:
A.m.k. 24 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við eða undir stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Einkenni sjúkdóms geta versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða.


Aukaverkanir

Algengasta aukaverkun lyfsins er svimi og kemur fyrir hjá um 2% þeirra sem taka lyfið. Almennt eru aukaverkanir lyfsins vægar og ganga yfir þegar líður á meðferðina.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Gula          
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir        
Hjartsláttartruflanir, hraður hjartsláttur        
Lágur blóðþrýstingur          
Sundl, svimi          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      
Verkur fyrir brjósti        
Þreyta, máttleysi          

Milliverkanir

Önnur blóðþrýstingslækkandi lyf geta aukið blóðþrýstingslækkandi áhrif lósartans.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú hafir nýlega fengið mikinn niðurgang eða uppköst
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú hafir sögu um ofsabjúg

Meðganga:
Lyfið eykur líkur á fósturskaða sé það notað á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Minni skammtar. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára.

Eldra fólk:
Auknar líkur eru á aukaverkunum. Minni skammtar eru oft notaðir.

Akstur:
Lyfið getur valdið svima og þar með haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Áfengi getur haft óæskileg áhrif á blóðþrýsting og hjartsláttarhraða, og aukið líkur á aukaverkunum lyfsins. Ekki er æskilegt að neyta áfengis meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.