Telfast

Ofnæmislyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Fexófenadín

Markaðsleyfishafi: Opella Healthcare France SAS | Skráð: 1. nóvember, 9999

Fexófenadín, virka efnið í Telfast, hindrar áhrif histamíns í líkamanum, en histamín er það efni sem veldur helstu einkennum ofnæmis. Með því að koma í veg fyrir virkni histamíns má minnka einkenni ofnæmis eða koma í veg fyrir þau. Fexófenadín er virkt umbrotsefni virka efnisins terfenadíns, og er lyfið án róandi og sljóvgandi áhrifa. Fexófenadín er notað gegn ofnæmiseinkennum af völdum histamíns, svo sem árstíðabundnu ofnæmiskvefi, eða ofnæmisbólgum í nefi og augum, auk þess sem það dregur úr einkennum langvinns ofsakláða.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
Við ofnæmiskvefi: 120 mg í senn einu sinni á dag. Við langvinnum ofsakláða: 180 mg í senn einu sinni á dag.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Um 1 klst. Hámarksverkun næst á u.þ.b. 6 klst.

Verkunartími:
Um 24 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða.


Aukaverkanir

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Höfuðverkur, svimi, ógleði          
Sljóleiki          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      

Milliverkanir

Æskilegt er að láta 2 klst. líða á milli inntöku fexófenadíns og sýrubindandi lyfja sem innihalda ál og magnesíum.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið getur valdið svima og þar með haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.