Topimax

Flogaveikilyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Tópíramat

Markaðsleyfishafi: Janssen-Cilag

Topimax, sem inniheldur virka efnið tópíramat, er flogaveikilyf. Flogaveiki getur orsakast af heilaskaða eða gengið í erfðir. Margar undirtegundir flogaveiki hafa verið skilgreindar eftir þeim einkennum sem fylgja flogunum og breytingum sem verða á heilastarfsemi á meðan þau ganga yfir. Einkenni flogaveiki stafa af óeðlilega mikilli virkni taugafrumna í heila og hárri tíðni taugaboða. Þessar breytingar geta verið bundnar við lítinn hluta heilans (hlutaflog) eða náð yfir stóran hluta hans (alflog). Tópíramat hindrar þær breytingar sem verða á starfsemi heilans í flogaköstum, það dregur úr tíðni taugaboða og eykur áhrif hamlandi taugaboðefnis í heila. Lyfið er notað eitt og sér eða sem viðbótarmeðferð hjá sjúklingum með hlutaflog, með eða án síðkomnum alflogum og frumkomnum krampaflogum og sem viðbótarmeðferð við Lennox-Gastaut heilkenni. Lyfið er líka notað, sem annar valkostur, til að fyrirbyggja mígreni hjá fullorðnum.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur og hylki til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
Skammtar eru einstaklingsbundnir. Flogaveiki: 25-500 mg á dag. Mígreni, fullorðnir: 25-200 mg á dag. Töflurnar gleypist heilar og þær má hvorki brjóta né mylja. Hylkin gleypist heil.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Einstaklingsbundið, en almennt næst stöðug blóðþéttni eftir 4-8 daga.

Verkunartími:
Misjafn eftir ástandi sjúklings.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ef fleiri en einn skammtur gleymast í röð skaltu hafa samband við lækni. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Hætta skal töku lyfsins í samráði við lækni þar sem sjúkdómseinkenni geta aftur komið fram þegar töku lyfsins lýkur, sérstaklega ef skammtar eru ekki minnkaðir smám saman.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni strax.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða.


Aukaverkanir

Lyfið er yfirleitt gefið með öðrum flogaveikilyfjum og því er erfitt að segja til um það hvort eitthvert þeirra, og þá hvaða lyf, tengist aukaverkunum.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Hárlos          
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir        
Kviðverkir, hægðatregða          
Munnþurrkur          
Náladofi          
Sjóntruflanir, skjálfti, breytingar á bragðskyni          
Skapgerðarbreytingar        
Talerfiðleikar, ósamhæfðar vöðvahreyfingar          
Útbrot, kláði          
Vöðvaverkir, liðverkir          
Öndunarerfiðleikar        
Þróttleysi, minnisleysi, rugl, óróleiki          
Svefnhöfgi, þreyta, svimi          
Ógleði, lystarleysi, niðurgangur, uppköst          
Þunglyndi, kvíði, tilfinningatruflanir, þyngdarbreyting          
Athyglisbrestur          
Eyrnasuð, -verkur          
Blóðnasir, nefstífla og nefrennsli          
Tíð þvaglát, óþægindi við þvaglát          

Milliverkanir

Þegar getnaðarvarnarlyf, fenýtóín eða karbamazepín eru gefin með tópíramati getur þurft að breyta skömmtum. Fylgjast þarf með blóðþéttni digoxíns ef það er gefið með tópíramati. Einnig skal gæta varúðar varðandi notkun annarra lyfja sem geta valdið nýrnasteinum. Jóhannesarjurt getur hugsanlega minnkað virkni lyfsins.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú eða einhver í fjölskyldunni hafi fengið nýrnasteina
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með sögu um augnsjúkdóm

Meðganga:
Lyfið eykur líkur á fósturskaða sé það notað á meðgöngu. Ekki ætti að nota lyfið nema gagnsemi þess fyrir móður sé talin vega þyngra en hugsanleg áhætta fyrir fóstrið.

Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 2 ára við flogaveiki.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Auk þeirra áhrifa sem flogaveikin hefur sjálf, getur lyfið skert athygli og viðbragðsflýti og þar með aksturshæfni. Ekki aka bíl meðan lyfið er tekið.

Áfengi:
Eykur sljóvgandi áhrif lyfsins og því á ekki að neyta áfengis meðan lyfið er tekið.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Nægileg vökvaneysla er mikilvæg meðan á meðferð stendur.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.