Um Lyfju Heyrn

Heyrn

Lyfja Heyrn sérhæfir sig í að verja, mæla og bæta heyrn með framúrskarandi þjónustu löggilts heyrnarfræðings og sérþjálfaðs starfsfólks.

Lyfja Heyrn er fyrsta verslun sinnar tegundar á Íslandi þar sem viðskiptavinir geta komið í einfalda og ítarlega heyrnarmælingu, skoðað heyrnartæki, stuðningsvörur heyrnartækja og fyrirbyggjandi lausnir fyrir heyrn með aðgengi að sérfræðiráðgjöf heyrnarfræðings og sérþjálfaðs starfsfólks.

Markmið Lyfju Heyrn er að breyta upplifun, þjónustu og vegferð viðskiptavina sem glíma við heyrnarskerðingu ásamt því að veita lausnir og faglega ráðgjöf á vörum sem vernda heyrn.

Við viljum þjónusta sérstaklega þá hópa sem þurfa á heyrnarvernd að halda í starfi og leik. Við bjóðum upp á algjörlega sérsniðnar heyrnarvarnir. Með því að skanna eyrað fáum við upp stafrænt mót af eyranu og sérsmíðum eftir því sérsniðna eyrnartappa.

Hjá Lyfju Heyrn færð þú:

  • Ítarlega heyrnarmælingu og getur skoðað vöruval heyrnatækja í sérhönnuðu heyrnarstúdíói
  • Einfalda heyrnarmælingu sem segir til um það hvort þú þurfir að koma í ítarlegri heyrnarmælingu
  • Ráðgjöf um heyrnartæki, fyrirbyggjandi vörur og lausnir.
  • Heyrnartæki til prufu í kjölfar heyrnarmælingar
Við bjóðum hágæða heyrnartæki frá Phonak sem eru með þeim bestu á markaðnum. Lyfja Heyrn sérhæfir sig einnig í sérhönnuðum vörum fyrir heyrnarvernd sem hentar vel td við vinnu eða í frístundum.

BÓKA TÍMA

Hjúkrunarþjónusta Lyfju Lágmúla

Lyfja býður upp á nýja þjónustu há hjúkrunarfræðingum Lyfju Lágmúla en þangað getur þú mætt í eyrnahreinsun og heyrnarmælingu án tímabókunar sem gefur til kynna hvort heyrnarskerðing geti verið til staðar. Opið er frá klukkan 8-16 virka daga.

Hjúkrunarfræðingur framkvæmir heyrnarskimunarpróf til að kanna hvort um heyrnarskerðingu sé að ræða og hjálpar þér að leita frekari aðstoðar heyrnarfræðings eða háls- og eyrnalæknis ef þörf krefur.

ÞjónustaAlmennt verðEldri borgarar og öryrkjar
Eyrnahreinsun og heyrnarmæling4.990 kr. 3.990 kr.

Kynntu þér hjúkrunarþjónustu Lyfju hér

Áhugaverðar staðreyndir

  • Samkvæmt John Hopkins Medicine upplifa 1 af hverjum 3 fullorðnum eldri en 65 ára heyrnarskerðingu
  • Þeir sem þurfa á heyrnartækjum að halda fá þau að jafnaði 6 árum of seint > erfiðari endurhæfing
  • Sífellt yngra fólk glímir við heyrnarskerðingu, vegna breytinga á hlustun, samkvæmt rannsókn NIDCD í USA er hlutfallið 14% á aldrinum 20-69 ára

Ef grunur leikur á skertri heyrn hjá barni á aldrinum 0-18 ára er best að leita til Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar, sérfræðinga í háls-, nef- og eyrnalækningum eða heimilislæknis.