Adrenalin Mylan

Hjartasjúkdómalyf | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Adrenalín

Markaðsleyfishafi: Mylan | Skráð: 1. júní, 2009

Adrenalín er efni sem er framleitt í nýrnahettum líkamans. Við áreynslu eða streitu losnar aukið magn af þessu boðefni og við finnum fyrir einkennum eins og hröðum hjartslætti, svita, ógleði, svima, erfiðleikum við öndun o.s.frv. Adrenalín er notað sem neyðarmeðferð við astma, hjartastopp eða bráðaofnæmi hjá einstaklingum með sögu um eða þekkta áhættu fyrir ofnæmi. Bráðaofnæmi getur komið til vegna fæðu, lyfja, áreynslu, skordýrabits og ýmislegs annars. Adrenalín hefur æðaþrengjandi áhrif, það vegur því upp á móti æðavíkkuninni sem getur leitt til blóðþrýstingslækkunar við ofnæmisviðbrögð. Adrenalín veldur auk þess slökun á sléttum vöðvum í lungnaberkjum og minnkar með því öndunarerfiðleika og andþrengsli af völdum bráðaofnæmis. Auk þess dregur adrenalín úr kláða, ofsabjúg og einkennum frá meltingar- og þvagfærum vegna ofnæmislosts.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Stungulyf, lausn.

Venjulegar skammtastærðir:
Lyfið er ætlað til bráðameðferðar samkæmt meðferðarráðleggingum.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Verkun lyfsins kemur nánast strax fram við notkun.

Verkunartími:
10-20 mín.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lausnin á að vera litarlaus og tær. Lyfið má ekki frjósa.

Ef skammtur gleymist:
Lyfið er eingöngu notað í neyð vegna bráðaofnæmis og er ekki notað að staðaldri.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Lyfið er eingöngu notað í neyð og er ekki notað að staðaldri.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Leitaðu neyðarhjálpar þegar í stað. Of stórir skammtar eða röng gjöf lyfsins geta leitt til skyndilegrar hækkunar blóðþrýstings sem getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér.

Langtímanotkun:
Lyfið er eingöngu notað í neyð og er ekki notað að staðaldri.


Aukaverkanir

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Fölvi, máttleysi          
Hraður hjartsláttur, skjálfti          
Höfuðverkur, svimi          
Ógleði og uppköst          
Óróleiki, kvíði, sviti          
Öndunarerfiðleikar, hjartsláttartruflanir        

Milliverkanir

Adrenalín er venjulega gefið með mikilli varúð sjúklingum með hjartasjúkdóma. Adrenalín hemur seytingu insúlíns og hækkar því blóðsykur. Því getur reynst nauðsynlegt fyrir sykursjúka sem fá adrenalín að auka skammt af insúlíni eða öðrum sykursýkilyfjum.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með gláku
  • þú sért með háþrýsting
  • þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með ofvirkan skjaldkirtil
  • þú sért með skerta nýrnastarfsemi
  • þú sért með sykursýki
  • þú sért með æxli í nýrnahettum
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með lág kalíumgildi í blóði
  • þú sért með há kalsíumgildi í blóði
  • þú sért með æxli í blöðruhálskirtli

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum. Lyfið á aðeins að nota á meðgöngu ef ávinningurinn er meiri en hugsanleg áhrif á fóstur.

Brjóstagjöf:
Áhrif á brjóstmylking eru ólíkleg.

Börn:
Skammtar eru háðir líkamsþyngd.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir. Viðkvæmara fyrir sumum aukaverkunum lyfsins.

Akstur:
Ofnæmisviðbrögðin sjálf og aukaverkanir lyfsins geta skert aksturshæfni. Ekki aka bíl eftir gjöf lyfsins.

Áfengi:
Ekki neyta áfengis meðan lyfið er notað.

Íþróttir:
Bannað í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.