Bufomix Easyhaler

Lyf gegn teppusjúkdómum í öndunarvegi | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Búdesóníð Formóteról

Markaðsleyfishafi: Orion Corporation | Skráð: 1. nóvember, 2014

Bufomix Easyhaler inniheldur tvö virk efni, formóteról og búdesóníð. Búdesóníð er barksteri með bólgueyðandi verkun í lungum sem dregur úr astmaeinkennum og að astmi versni. Formóteról er langvirkt astmalyf. Það veldur vöðvaslökun í lungnaberkjum, víkkar öndunarveginn og auðveldar með þeim hætti öndun. Berkjuvíkkandi áhrif formóteróls valda því að búdesóníð kemst greiðar í lungun og hefur um leið aukin áhrif. Lyfið er notað í reglulegri meðferð á astma.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Innöndunarduft.

Venjulegar skammtastærðir:
Fullorðnir og börn 12 ára og eldri: 1-2 skammtar í senn 2svar á dag. Hver skammtur inniheldur 160 míkrógrömm búdesóníð og 4,5 míkrógrömm formóteról eða 320 míkrógrömm búdesóníð og 9 míkrógrömm formóteról.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
1-3 mín. eftir innöndun.

Verkunartími:
Um 12 klst. eftir stakan skammt.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta notkun lyfsins nema í samráði við lækni. Hafi astmalyf verið notað í stórum skömmtum eða í langan tíma þarf að minnka skammta smám saman áður en notkun þess er hætt.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef notaðir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Mikilvægt er að læknir fylgist með astma svo að bólgur versni ekki án þess að sjúklingur verði þess var.


Aukaverkanir

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Erting í hálsi, hæsi og hósti          
Hjartsláttarónot          
Hraður hjartsláttur, hjartsláttartruflanir        
Höfuðverkur, skjálfti          
Skapgerðarbreytingar          
Sveppasýking í munni og hálsi          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      
Öndunarerfiðleikar      

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með ofvirkan skjaldkirtil
  • þú sért með sykursýki
  • þú hafir fengið lungnasýkingu, sér í lagi ef þú hefur fengið berkla
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á virkni lyfsins.

Íþróttir:
Bannað í og utan keppni. Hægt er að sækja um einfaldaða undanþágu til Undanþágunefndar Lyfjaráðs ÍSÍ.

Annað:
Mikilvægt er að leiðbeina sjúklingi um að skola munninn með vatni eftir innöndun ráðlagðs skammts til að sporna við hættu á þruskusýkingu í munni og koki. Vera má að sjúklingurinn finni hvorki bragð né verði að öðru leyti var við lyfið þegar lyfið er notað vegna þess hve lítið magn af lyfinu er í hverjum skammti.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.