Efedrin Mylan
Hjartasjúkdómalyf | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Efedrín
Markaðsleyfishafi: Viatris Limited | Skráð: 1. júní, 2009
Efedrín dregur úr þrota í slímhúðum og víkkar berkjur Í samanburði við adrenalín eru berkjuvíkkandi áhrif efedríns veikari, en vara lengur. Adrenalín er efni sem er framleitt í nýrnahettum líkamans. Við áreynslu eða streitu losnar aukið magn af þessu boðefni og við finnum fyrir einkennum eins og hröðum hjartslætti, svita, ógleði, svima, erfiðleikum við öndun o.s.frv. Adrenalín er notað sem neyðarmeðferð við astma, hjartastopp eða bráðaofnæmi hjá einstaklingum með sögu um eða þekkta áhættu fyrir ofnæmi. Bráðaofnæmi getur komið til vegna fæðu, lyfja, áreynslu, skordýrabits og ýmislegs annars. Adrenalín hefur æðaþrengjandi áhrif, það vegur því upp á móti æðavíkkuninni sem getur leitt til blóðþrýstingslækkunar við ofnæmisviðbrögð. Adrenalín veldur auk þess slökun á sléttum vöðvum í lungnaberkjum og minnkar með því öndunarerfiðleika og andþrengsli af völdum bráðaofnæmis. Auk þess dregur adrenalín úr kláða, ofsabjúg og einkennum frá meltingar- og þvagfærum vegna ofnæmislosts.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Stungulyf, lausn.
Venjulegar skammtastærðir:
Lyfið er ætlað til bráðameðferðar samkvæmt meðferðarráðleggingum.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Verkun lyfsins kemur nánast strax fram við notkun.
Verkunartími:
20-60 mín.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lausnin á að vera litarlaus og tær. Lyfið má ekki frjósa.
Ef skammtur gleymist:
Lyfið er eingöngu notað í neyð vegna bráðaofnæmis og er ekki notað að staðaldri.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Lyfið er eingöngu notað í neyð og er ekki notað að staðaldri.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Leitaðu neyðarhjálpar þegar í stað. Of stórir skammtar eða röng gjöf lyfsins geta leitt til skyndilegrar hækkunar blóðþrýstings sem getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér.
Langtímanotkun:
Lyfið er eingöngu notað í neyð og er ekki notað að staðaldri.
Aukaverkanir
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Fölvi, máttleysi | |||||||
Hraður hjartsláttur, skjálfti | |||||||
Höfuðverkur, svimi | |||||||
Ógleði og uppköst | |||||||
Óróleiki, kvíði, sviti | |||||||
Öndunarerfiðleikar, hjartsláttartruflanir |
Milliverkanir
Adrenalín er venjulega gefið með mikilli varúð sjúklingum með hjartasjúkdóma. Adrenalín hemur seytingu insúlíns og hækkar því blóðsykur. Því getur reynst nauðsynlegt fyrir sykursjúka sem fá adrenalín að auka skammt af insúlíni eða öðrum sykursýkilyfjum.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
- Amitriptylin Abcur
- Anafranil
- Azilect
- Concerta
- Efexor Depot
- Klomipramin Mylan
- Medikinet
- Medikinet CR
- Methylphenidate Medical Valley
- Methylphenidate Sandoz
- Methylphenidate STADA
- Methylphenidate Teva
- Metylfenidat Actavis
- Noritren
- Rasagilin Krka
- Rinexin
- Ritalin
- Ritalin Uno
- Venlafaxin Actavis
- Venlafaxin Krka
- Venlafaxin Medical Valley
- Venlafaxine Alvogen
- Venlafaxine Bluefish
Getur haft áhrif á
- Atropin Mylan
- Cardosin Retard
- Carduran Retard
- Catapresan (Undanþágulyf)
- Dexametason Abcur
- Dexamethasone hameln
- Dexamethasone Krka
- Dexavit
- Digoxin DAK (Lyfjaver)
- Doxazosin Krka
- Elvanse Adult
- Syntocinon
- Volidax
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með gláku
- þú sért með háþrýsting
- þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
- þú sért með ofvirkan skjaldkirtil
- þú sért með skerta nýrnastarfsemi
- þú sért með sykursýki
- þú sért með æxli í nýrnahettum
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með lág kalíumgildi í blóði
- þú sért með há kalsíumgildi í blóði
- þú sért með æxli í blöðruhálskirtli
Meðganga:
Engin þekkt áhætta
Brjóstagjöf:
Ekki liggja fyrir upplýsingar um hvort efedrín berst yfir í brjóstamjólk.
Börn:
Skammtar eru háðir líkamsþyngd.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir. Viðkvæmara fyrir sumum aukaverkunum lyfsins.
Akstur:
Efedrin Mylan hefur engin áhrif á hæfni til aksturs eða notkunar véla.
Íþróttir:
Bannað í keppni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.