Mometason Apofri

Neflyf | Verðflokkur: 0 | Lausasölulyf

Virkt innihaldsefni: Mómetasón

Markaðsleyfishafi: Apofri AB | Skráð: 1. október, 2018

Mómetasón er notað við bólgusjúkdómum og ofnæmiseinkennum. Það bælir myndun efna sem framkalla bólgur og virkja ónæmiskerfið. Lyfið er steri sem hefur sömu áhrif og sterahormón sem myndast í nýrnahettunum. Mometason Apofri er notað staðbundið við ofnæmisnefkvefi og stöðugu nefkvefi sem og við skútabólgu en þá er það notað ásamt sýklalyfi.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Nefúði.

Venjulegar skammtastærðir:
Fullorðnir og börn, 12 ára og eldri. 2 úðar (50-100 míkrógrömm) í hvora nös einu sinni á dag. Þegar einkenni hafa minnkað má minnka skammtinn í 1 úða einu sinni á dag. Börn 3-11 ára: 1 skammtur (50 míkrógrömm) í hvora nös einu sinni á dag.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Innan við 12 klst en fullur árangur næst eftir notkun í um 2 daga.

Verkunartími:
Ekki að fullu þekktur.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Lyfið er venjulega aðeins notað þangað til einkenni hafa minnkað eða eru horfin. Farðu eftir fyrirmælum læknis.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef notaðir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Meiri hætta er á því að aukaverkanir lyfsins komi fram.


Aukaverkanir

Aukaverkanir eru sjaldgæfar, sérstaklega þegar lyfið er notað í stuttan tíma.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Höfuðverkur          
Særindi og sviði í nefi og hálsi          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      

Milliverkanir

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með sýkingu eða áverka í nefi

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.