Rosuvastatin Xiromed

Blóðfitulækkandi lyf | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Rósúvastatín

Markaðsleyfishafi: Medical Valley | Skráð: 1. apríl, 2018

Lyfið Rosuvastatin Xiromed inniheldur virka efnið rósúvastatín og hefur blóðfitulækkandi áhrif. Það tilheyrir flokki lyfja sem hindrar myndun á kólesteróli í lifur og veldur því að kólesteról og fita í blóði minnkar. Lyfið er gefið sjúklingum sem hafa mikið kólesteról í blóði þegar breytingar á mataræði og hreyfingu hafa ekki borið tilætlaðan árangur. Halda á áfram að borða kólesterólsnautt fæði meðan á meðferð með lyfinu stendur. Lyfið hefur einnig sýnt árangur í þá veru að lækka kólesteról hjá sjúklingum með arfhreina (homozygot), ættgenga kólesterólhækkun.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
5-40 mg í senn einu sinni á dag.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Innan 1-2ja vikna. Hámarkssvörun við lyfjameðferð kemur venjulega fram eftir 4ra vikna meðferð og helst eftir það. Hámarksþéttni í plasma næst um 5 klst. eftir inntöku á stökum skammti.

Verkunartími:
Ekki að fullu þekktur.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Minni fituneysla er hluti af meðferðinni.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni, annars er hætta á því að sjúkdómurinn versni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal strax hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Notkun lyfsins í lengri tíma getur haft áhrif á lifrarstarfsemi. Æskilegt er að fylgst sé reglulega með lifrarstarfsemi og vöðvastyrk á meðan lyfið er tekið.


Aukaverkanir

Aukaverkanir lyfsins eru venjulega vægar og tímabundnar. Tíðni þeirra er skammtaháð.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Gula          
Höfuðverkur, svimi          
Kviðverkir, hægðatregða          
Ógleði          
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      
Verkir, eymsli og máttleysi í vöðvum        
Vöðvaverkir          
Þróttleysi          

Milliverkanir

Lyfið getur haft áhrif á sýrubindandi lyf, getnaðarvarnartöflur og hormónauppbótarmeðferðir. Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur dregið úr virkni lyfsins.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú hafir átt við áfengisvandamál að stríða
  • þú sért með vöðvakvilla (myopathy)
  • þú sért kona á barneignaraldri og notir ekki viðeigandi getnaðarvörn
  • þú sért eldri en 70 ára

Meðganga:
Lyfið getur valdið fósturskemmdum og því á ekki að nota það á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Minni skammtar eru oft notaðir.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni. Hafa skal þó í huga að svimi getur komið fram meðan á meðferð stendur.

Áfengi:
Getur aukið líkur á lifrarvandamálum. Gæta ætti hófsemis í áfengisdrykkju.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Sjúklingur ætti þegar í stað að tilkynna lækni alla óútskýrða vöðvaverki, þróttleysi eða krampa, sérstaklega ef einnig verður vart lasleika eða hita.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.