Tadalafil Mylan

Þvagfæralyf | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Tadalafíl

Markaðsleyfishafi: Mylan | Skráð: 1. janúar, 2018

Tadalafíl, virka efni lyfsins, er notað við stinningarvanda hjá körlum og minnkar niðurbrot á æðavíkkandi efni í getnaðarlim. Þetta veldur slökun á sléttum vöðvum í limnum, blóðflæði til hans eykst og bætir þannig stinningu. Þetta æðavíkkandi efni myndast í limnum við kynferðislega örvun og því veldur lyfið ekki stinningu eitt sér heldur þarf örvun til þess að lyfið virki. Áhrif lyfsins eru að mestu leyti bundin við æðar í getnaðarlimnum. Það getur haft einhver æðavíkkandi áhrif á öðrum stöðum í líkamanum, en í venjulegum skömmtum eru þau óveruleg. Lyfið getur þó leitt til tímabundinnar lækkunar á blóðþrýstingi vegna þessara æðavíkkandi áhrifa. Lyfið er ekki ætlað öðrum karlmönnum en þeim sem eiga í vandræðum með stinningu. Lyfið er alls ekki ætlað konum.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
5-20 mg í senn einu sinni á dag. Lyfið er tekið inn a.m.k. 30 mín. fyrir samfarir. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Um 30 mín.

Verkunartími:
Allt að 36 klst.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Lyfið er ekki tekið að staðaldri.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Lyfið er ekki tekið að staðaldri. Hætta má töku þess hvenær sem henta þykir.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Þó eru meiri líkur á að aukaverkanir lyfsins komi fram eftir því sem stærri skammtar eru teknir. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Engin þekkt vandamál. Dagleg notkun lyfsins er ekki ráðlögð.


Aukaverkanir

Aukaverkanir eru yfirleitt tímabundnar og vægar. Algengustu aukaverkanirnar eru höfuðverkur og meltingartruflanir, sem koma fyrir í meira en 10% tilfella.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Bakverkur eða vöðvaverkur          
Hjartsláttarónot          
Hjartsláttartruflanir, hraður hjartsláttur        
Höfuðverkur, svimi          
Langvarandi stinning        
Meltingartruflanir, kviðverkir          
Nefstífla          
Roði eða hitatilfinning í andliti          
Sjónskerðing      
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar      
Vélindabakflæði          
Yfirlið          

Milliverkanir

Greipaldinsafi getur haft áhrif á lyfið og skal því ekki drekka hann samhliða töku lyfsins.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • þú sért með blóðsjúkdóm
  • þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með óeðlilegan getnaðarlim
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með mænuskaða eða annan sjúkdóm í miðtaugakerfi
  • þú hafir fengið grindarholsáverka

Meðganga:
Lyfið er ekki ætlað konum.

Brjóstagjöf:
Lyfið er ekki ætlað konum.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið getur valdið svima. Óráðlegt er að aka bíl fyrr en áhrif lyfsins eru liðin hjá.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins. Áfengi getur þó dregið úr kyngetu.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.

Annað:
Sjúklingar sem fá langvarandi stinningu sem varir í 4 klst. eða lengur eiga að hafa strax samband við lækni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.