Augn­skimun fyrir fólk með sykursýki

Augnskimunin fer fram með gervigreind sem byggir á háþróaðri myndgreiningartækni sem styður við mat á augnbotnum og auðveldar eftirlit með augnheilsu fyrir fólk sem er með sykursýki. Tæknin notar öflugar myndavélar til að taka nákvæmar myndir af augnbotnum, sem síðan eru greindar með sérstöku gervigreindarkerfi.
Niðurstöðurnar liggja fyrir strax eftir skimunina.

Augnskanni_700x300-4-Kerfið er þjálfað á stórum gagnasöfnum af augnbotnamyndum ásamt því að vera margvottað í rannsóknum víðsvegar um heim og getur greint mynstur og frávik sem tengjast áhættuþáttum fyrir augnsjúkdóma í sykursýki

Líttu við í  Lyfju Lágmúla frá 8-16 virka daga. Tímapantanir eru óþarfar. Þú færð niðurstöður innan 15 mínútna. Annað hvort er niðurstaðan jákvæð og mælir engar breytingar eða mælir breytingar og þá bendum við viðskiptavinum á að leita til augnlæknis.

Verndaðu sjónina - komdu reglulega í augnskimun!

Ef þú ert með sykursýki er mikilvægt að fara reglulega í augnskimun. Hár blóðsykur og hár blóðþrýstingur geta haft þau áhrif á æðarnar í augunum að það leiði til sjónskerðingar ef ekki er gripið inn í tímanlega. Regluleg skimun og heilbrigður lífsstíll hafa verndandi áhrif á sjónina til framtíðar.

Lyfja_pr_myndir_04012025_c-1

Hvað getur þú gert til að vernda sjónina?

  • Góð blóðsykurstjórnun. Hár blóðsykur getur haft þau áhrif á æðarnar í augunum að það leiði til sjónskerðingar. Borðaðu hollan mat, hreyfðu þig reglulega, fylgstu með blóðsykrinum og fylgdu ráðum frá lækni.
  • Gættu að blóðþrýstingnum. Hár blóðþrýstingur getur einnig haft þau áhrif á æðarnar í augunum að það leiði til sjónskerðingar. Borðaðu hollan mat, hreyfðu þig reglulega, fylgstu með blóðþrýstingnum og fylgdu ráðum frá lækni.
  • Farðu reglulega í augnskimun. Sykursýki og háþrýstingur geta haft áhrif á augun án þess að þú finnir fyrir einkennum til að byrja með. Skimun getur hjálpað til við að greina breytingar snemma.
  • Borðaðu hollt. Næringarríkt mataræði með grænmeti, ávöxtum, omega-3 og vítamínum getur styrkt augnheilsu.
  • Verndaðu augun gegn sól. Notaðu sólgleraugu (eða venjuleg gleraugu) með UV-vörn til að vernda augun gegn skemmdum af völdum sólarljóss.
  • Haltu augunum rökum. Gervitár geta hjálpað við augnþurrki eða ertingu í augum.

Staðsetning og afgreiðslutímar:

  • Lyfja Lágmúla kl. 8:00-16:00 virka daga. Tímapantanir eru óþarfar.

Verð:

  • Almennt verð 4.990 kr.
  • Eldri borgarar og öryrkjar 3.990 kr.