Smitleiðir Lifrarbólga B smitar með svipuðum hætti og alnæmi. Algengustu smitleiðir eru samfarir, og blóðblöndun, t.d. með menguðum sprautum og nálum. Einnig getur sjúkdómurinn borist frá móður til barns við fæðingu. Lifrarbólga C smitar með blóðsmitun eins og lifrarbólga B en mun sjaldnar með samförum eða við fæðingu.
Einkenni Tíminn sem líður frá smiti til einkenna af völdum lifrarbólgu B er langur eða 2–6 mánuðir. Samsvarandi tími frá smiti til einkenna af völdum lifrarbólgu C er um 1–3 mánuðir. Margir þeirra sem smitast, einkum af lifrarbólgu C, fá engin augljós bráð einkenni sjúkdómsins.
Bráð einkenni eru í byrjun lík flensu, með ónotum í efri hluta kviðar, lystarleysi og ógleði og stöku sinnum liðverkjum. Nokkrum dögum síðar getur komið fram gula og dökknar þá þvag og hægðir lýsast. Gula og kláði geta varað vikum og mánuðum saman.
Fylgikvillar Stundum veldur lifrarbólga B viðvarandi lifrarbólgu sem smám saman leiðir til skorpulifrar og jafnvel lifrarkrabbameins. Ef sýking verður viðvarandi getur viðkomandi haldið áfram að smita árum saman. Lifrarbólga C veldur mun oftar viðvarandi lifrarbólgu en lifrarbóla B og er þá viðkomandi einnig smitandi árum saman. Hún getur með tímanum einnig valdið skorpulifur og lifrarkrabbameini.
Greining Lifrarbólga er greind með blóðprófi. Niðurstöður liggja fyrir innan nokkurra daga frá því að próf er tekið.
Meðferð Oftast læknast lifrarbólga B af sjálfu sér eftir nokkrar vikur eða mánuði. Verði sjúkdómurinn viðvarandi er í sumum tilvikum hægt að lækna hann eða milda með lyfjameðferð. Lifrarbólga C læknast mun sjaldnar af sjálfu sér en í sumum tilvikum er hægt að lækna hana með lyfjameðferð eins og lifrarbólgu B.
Hægt er að fyrirbyggja lifrarbólgu B með bólusetningu. Enn sem komið er er ekki til bóluefni gegn lifrarbólgu C.
Efni fengið af heimasíðu
Landlæknis birt með góðfúslegu leyfi.