Garðabrúða
Garðabrúða er unnin úr rótum og stönglinum sem er í mold. Valeriana officinalis
er af garðabrúðuætt. Jurtin vex villt á Íslandi og er tiltölulega
óalgeng nema á Suðurlandi. Hún er líka ræktuð í Evrópu, Bandaríkjunum
og Japan. Jurtin er frekar há, með litlum hvítum eða ljósbleikum
blómum.
Heiti Garðabrúða Valeriana Baldriana Drogen´s Baldrian-B+ (sérheiti náttúrulyfs)
Innihaldsefni Extrakt af rót garðabrúðu (Valeriana officinalis)
inniheldur rokfimar olíur og iridóíð. Þrátt fyrir miklar rannsóknir
hefur ekki tekist að ákvarða nákvæmlega hvaða efni það eru sem valda
verkun úr garðabrúðu. Sennilega er um að ræða blandaða verkun, frekar
en verkun eins efnis.
Verkunarmáti Svo virðist sem virku
efni garðabrúðunnar bindist lauslega bensódíasepín viðtökum í
líkamanum. Það gæti útskýrt hvers vegna notkun á efninu leiði ekki til
ávanabindingar og fíknar eins og hin hefðbundnu bensódíasepín lyf
(díasepam og alprazólam). Fráhvarfseinkenni koma ekki fram.
Notkun Garðarbrúða hefur verið notuð í meira en þúsund ár sem
róandi og svefnbætandi lyf. Garðabrúða þekkist undir heitinu “valium
nítjándu aldarinnar”. Garðabrúða: - dregur úr kvíða, - er svefnbætandi
og - minnkar taugaspennu.
Rannsóknir Rannsóknir sýna að
þeir sem neyta náttúrulyfsins eiga auðveldar með að sofna og að þeir
sofi betur. Áralöng notkun og víðtækar, vandaðar rannsóknir benda til
þess að garðabrúða sé afar áhrifarík og örugg að því tilskildu að hún
sé notuð í því magni sem mælt er með.
Skammtar Skammtar
eru ætlaðir fullorðnum, alls ekki börnum yngri en 12 ára. - Við óróa:
150mg 3-4 sinnum á dag. - Við svefnerfiðleikum: 225-300mg, ½-1 klst.
fyrir svefn. Hafi læknir ráðlagt aðra skammta skal fylgja fyrirmælum
hans.
Aukaverkanir - Ekki þekktar en sjálfsagt er að hafa
samband við lækni ef aukaverkana gætir. - Telja má náttúrulyfið
hættulaust en ekki liggur fyrir reynsla af ofskömmtunum. - Hafið
samband við lækni ef óvæntra einkenna verður vart og sýnið honum
umbúðirnar af náttúrulyfinu. - Einkenni ofskömmtunar geta verið lömun,
slappleiki, veikur hjartsláttur, óskýr sjón, ógleði og líklega
lifrareitrun.
Milliverkanir Hvort garðabrúða geti aukið
eða dregið úr virkni annarra lyfja liggur ekki fyrir en þó er
hugsanlegt að hún geti haft milliverkanir við róandi lyf og svefnlyf. Í
vafatilvikum skal leita ráða hjá lækni eða lyfjafræðingi.
Frábendingar
Ófrískar konur og konur með barn á brjósti ættu ekki að nota garðabrúðu
án samráðs við lækni. Náttúrulyfið er ekki ætlað börnum. Þótt
garðabrúða sé ekki merkt með rauðum varúðarþríhyrningi, eins og lyf sem
geta skert hæfni til aksturs bifreiða og notkunar á vélum, er ekki hægt
að útiloka slík áhrif fyrr en reynsla er komin á hvaða áhrif
náttúrulyfið hefur.
Handhafi markaðsleyfis Dansk Droge A/S Industrigrenen 10, 2635 Ishøj Danmörk
Umboðsaðili á Íslandi Pharmaco hf. Hörgatúni 2 210 Garðabær
Heimildir
A. Peirce. Valerian í bókinni Practical guide to Natural Medicines 1th
edition,ár? A Stonesong Press Book, New York, bls. 649-651.
G.
Samuelsson. Valerian root í bókinni Drugs of Natural Oigin A Textbook
of Pharmacognosy 4 th revised edition, 1999. Kristinstads Boktryckeri
AB, Kristianstad, Sweeden, bls 263-264.
Drogen´s Baldrian-B+ fylgiseðill endurskoðaður 30. október 2000 hjá Lyfjanefnd ríkisins.