Náttúruefni og náttúrulyf
Náttúruefni eru unnin á
einfaldan hátt úr plöntum, dýrum, örverum, steinefnum eða söltum. Ef
hægt er að sýna fram á áhrif náttúruefnis á sjúkdóm eða
sjúkdómseinkenni er hægt að sækja um skráningu efnisins sem náttúrulyf.
Öll framleiðsla náttúrulyfja þarf að vera stöðluð og vera undir
gæðaeftirliti til þess að markaðsleyfi sé veitt. Ennfremur þurfa
náttúrulyf að henta til sjálfsmeðferðar. Markaðsleyfi er ekki veitt til
notkunar náttúrulyfs gegn alvarlegum eða flóknum sjúkdómum sem þarfnast
sérfræðikunnáttu.

Munurinn
á náttúrulyfjum og sérlyfjum felst í því hversu mikið lyfin eru unnin.
Náttúrulyf innihalda eitt eða fleiri virk efni sem eru unnin á
einfaldan hátt úr plöntum, dýrum, örverum, steinefnum eða söltum. Hrein
efni sem búið er að einangra úr náttúrunni teljast ekki náttúrulyf.
Almennt gildir að náttúrulyf innihalda minna af virkum efnum en sérlyf
- þar af leiðandi hafa þau minni virkni og minni hætta er á
aukaverkunum.
Náttúruefni fást frá mörgum mismunandi framleiðendum og eru misjöfn að
gæðum. Ef sýnt hefur verið fram á ákveðna verkun náttúruefnis frá
tilteknum framleiðanda gildir það ekki endilega um þetta náttúruefni
frá öllum öðrum framleiðendum. Það er því mikilvægt ef fólk vill nota
náttúruefni eða náttúrulyf til að bæta eigin heilsu að það geti treyst
gæðum vörunnar. Lyfjayfirvöld votta gæði framleiðslu þegar þau veita
náttúrulyfjum markaðsleyfi.
Heilbrigð skynsemi Áður en náttúruefni eða náttúrulyf eru
keypt ætti alltaf að hafa í huga hver gefur upplýsingar um þau. Það er
eðlilegt að taka upplýsingum frá söluaðilum með ákveðnum fyrirvara, og
velta því fyrir sér hvaðan þeir hafa upplýsingar um efnin. Eru þeir til
dæmis að draga víðtækar ályktanir út frá eigin reynslu, af sögusögnum
eða niðurstöðum óstaðfestra rannsókna? Það þarf að hafa varann á ef
söluaðili heldur því fram að: -efnið lækni alvarlega sjúkdóma á borð
við krabbamein á einfaldan hátt -efnið hjálpi þér að grennast án
fyrirhafnar -hann hafi upplýsingar sem heilbrigðisyfirvöld og
heilbrigðisstéttir séu í samsæri um að leyna almenningi -náttúruefni
valdi aldrei aukaverkunum Náttúrulyf geta haft áhrif á verkun annarra
lyfja, og því ætti alltaf að athuga möguleika á milliverkunum ef þú
tekur önnur lyf. Ef einhver einkenni koma fram meðan náttúrulyf er
tekið sem gætu hugsanlega verið aukaverkanir, s.s. magaóþægindi, útbrot
og kláði eða höfuðverkur, ætti að hætta að taka lyfið strax. Ef
einkennin eru mikil eða langvarandi ætti að hafa samband við lækni.
Ekki taka óþarfa áhættu Þungaðar
konur, konur með barn á brjósti og ung börn ættu ekki að taka lyf,
náttúruefni eða náttúrulyf, nema nauðsyn beri til að nota þau. Gögn um
öryggi náttúrulyfja fyrir þessa hópa liggja ekki fyrir og því vegur
áhættan við að nota þau mun meira en hugsanlegur ávinningur. Eldra fólk
með skerta lifrarstarfsemi og fólk með alvarlega sjúkdóma ætti einnig
að forðast notkun náttúrulyfja, af sömu ástæðum.
Ekki taka of stóra skammta
Það er aldrei ráðlegt að taka stærri skammta en eru skráðir á
pakkningar náttúrulyfsins eða sem sérfræðingur ráðleggur. Stærri
skammtar gera sjaldnast meira gagn og auka hættu á aukaverkunum. Mjög
stórir skammtar geta jafnvel haft eituráhrif ef virk efni safnast upp í
líkamanum. Þetta á einnig við ef stórir skammtar eru teknir til lengri
tíma.
Ekki nota náttúrulyf við alvarlegum sjúkdómum Aldrei
ætti að nota náttúrulyf til sjálfsmeðhöndlunar gegn alvarlegum
sjúkdómum á borð við sykursýki, hjartasjúkdómum, krabbameini eða
alnæmi. Það er flókið að meðhöndla þessa sjúkdóma, og þarf mikla
þekkingu og góða aðstöðu til. Í þessum tilfellum ætti læknir að stjórna
meðferðinni. Það sama gildir um alvarleg einkenni eins og bjúg eða
mikla sviðatilfinningu við þvaglát. Ef þú vilt reyna einhver náttúrulyf
við alvarlegum sjúkdómum ætti að taka ákvörðun um það í samráði við
þann lækni sem stjórnar meðferðinni.
Ýmir Vésteinsson, lyfjafræðingur: