Veldu vellíðan

Almenn fræðsla Hreyfing

  • Mynd: Jozef Polc, www.123rf.com

Hvað er heilsa? Það er líklega mjög misjafnt hvaða skoðun fólk hefur á því. Fyrir suma þýðir góð heilsa það að vera laus við sjúkdóma og verki og geta stundað vinnu og áhugamál án mikilla vandkvæða. Fyrir aðra þýðir hugtakið að vera grannur og í brjálæðislega góðu formi. 

En hvað er málið, hvað er góð heilsa og hvernig er hægt að öðlast hana?

  • Í dag eru margir sammála um að það sem skapar góða heilsu er að vera í góðu jafnvægi.
  • Of mikið af þessu eða hinu skapar heilsufarsvandamál til langs tíma.
  • Of mikið af mat, of mikið af sykri, of mikið af kaffi, of mikið af líkamsþjálfun, of mikið af áfengi, of mikið af lyfjum og svo mætti lengi telja.
  • Of lítið getur einnig skapað vandamál.
  • Of lítið af næringarríkri og góðri fæðu, of lítil andleg næring, of lítil gleði, of lítil tjáning, of lítil útrás og fleira í þá áttina.

Oft er fólk að leita að hinu eina sanna heilbrigði og hendir sér út í öfgar í líkamsrækt og mataræði, djöflast í ræktinni, hleypur og hleypur, neitar sér um heilu fæðuflokkana, treður í sig fæðubótaefnum og telur sér trú um að það sé ægilega heilsuhraust.

En hvað gerist svo? Fæstir nenna þessu til lengdar og þá tekur við tómarúm sem þarf að fylla, eitthvað annað tekur við og ójafnvægið heldur áfram.

Þeir sem ná árangri í leit sinni að góðri heilsu eiga flestir eitt sameiginlegt.

  • Þeir hafa hreinlega kynnst sjálfum sér það vel að það verður auðvelt að velja úr.
  • Lært að velja það besta, það sem passar þeim.
  • Þeir hafa oftast skýra sýn á hvað hentar, velja það oftast og vita svo vel að inn á milli slæðist eitthvað sem er ekki endilega það besta, en eru ekkert að fara taugum yfir því.
  • Sumir vilja til dæmis halda sig frá ákveðnum fæðutegundum, en þá vegna þess að þeir finna að þeim verður ekki gott af þeim, t.d. vegna fæðuóþols eða annars. Aðrir vita að hæfileg líkamsrækt, góður göngutúr eða jóga hentar þeim mun betur en 10 km hlaup eða crossfit æfing.

Erfiðasti hlutinn í leitinni að þessu dásamlega jafnvægi er auðvitað að horfast í augu við sjálfan sig og virkilega skoða hvað er í gangi í kropp og sál. Það reynist mörgum erfitt og því leitar fólk oft í skyndilausnir og fyrirfram hannaða matarkúra og lífsstílsprógrömm, sem henta kannski engan veginn. Það er einhvernvegin auðveldara að setja ábyrgðina á aðra í stað þess að skoða sjálfan sig og eigin líðan.

Þegar góðu jafnvægi er náð, þá er einstaklingurinn miklu færari um að skynja eigin líðan og mun flinkari í að koma sér inn á beina veginn, þegar hann lendir út af.

Það mun nefnilega halda áfram að gerast, við erum að tala um manneskjur, ekki maskínur. Munurinn verður hins vegar sá að skiptunum utan vegar fækkar og vanlíðan er eitthvað sem verður óþægilegt, óviðkunnanlegt og einfaldlega ekki í boði.

1350x350_Hreyfing

Mynd: Jozef Polc, 123rf.com