Fortum

Sýklalyf | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Ceftazidím

Markaðsleyfishafi: Sandoz | Skráð: 11. desember, 1985

Fortum er sýklalyf í flokki lyfja sem kallast cefalóspórín. Það er er notað við meðferð alvarlegra bakteríusýkinga hjá fullorðnum og börnum. Virka efnið í lyfinu heitir ceftazidím og það drepur bakteríur með því að hindra að þær geti myndað bakteríuvegg.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Stungulyf.

Venjulegar skammtastærðir:
Læknirinn ákveður réttan skammt af Fortum og ræðst hann af: alvarleika og tegund sýkingar, hvort þú takir önnur sýklalyf, þyngd, aldri og nýrnastarfsemi. Læknir eða hjúkrunarfræðingur sjá yfirleitt um að gefa Fortum með inndælingu í bláæð eða vöðva.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Einstaklingsbundið.

Verkunartími:
Einstaklingsbundið.

Geymsla:
Geymið lyfið þar sem börn hvorki ná til né sjá við lægri hita en 25°C.

Ef skammtur gleymist:
Ef þú missir af inndælingu áttu að fá hana eins fljótt og unnt er. Ekki á að tvöfalda skammt til að bæta upp skammt sem gleymst hefur að nota, fáðu bara næsta skammt á venjulegum tíma.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Ef of stór skammtur af lyfinu hefur verið notaður, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222).

Langtímanotkun:
Lyfið er ekki ætlað til langtímanotkunar.


Aukaverkanir

Eins og við á um öll lyf getur þetta lyf valdið aukaverkunum en það gerist þó ekki hjá öllum.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Húðútbrot        
Krampar eða flog        
Niðurgangur          
Ofnæmisviðbrögð, útbrot, kláði og öndunarerfiðleikar      
Verkur á stungustað          

Milliverkanir

Rannsóknir á milliverkunum hafa aðeins verið gerðar með próbenecíði og fúrósemíði.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú hefur fengið alvarleg ofnæmisviðbrögð við einhverju öðru sýklalyfi

Meðganga:
Það liggja ekki fyrir fullnægjandi upplýsingar um notkun ceftazidíms á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Ceftazidím má nota samhliða brjóstagjöf.

Börn:
Lyfið má gefa börnum og ráðast þá skammtar af þyngd.

Eldra fólk:
Fá lægri skammta, sérstaklega þeir sem eru eldri en 80 ára.

Akstur:
Fortum getur valdið aukaverkunum sem hafa áhrif á hæfni þína til aksturs, svo sem sundli/svima. Aktu ekki eða notaðu vélar nema þú sért viss um að finna ekki fyrir slíkum áhrifum.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.