Þú ert hér: Forsíða > Lyfjabókin > Milliverkanir lyfja
Milliverkanir lyfja

Lyf sem eru tekin samtímis geta haft áhrif hvert á annað í líkamanum. Þessi áhrif eru kölluð milliverkanir. Milliverkanir geta valdið margvíslegum breytingum á áhrifum lyfs og nýtingu þess í líkamanum. Í mörgum tilfellum geta milliverkanir verið gagnlegar, t.d. geta sýklalyf oft aukið áhrif hvert annars þannig að minni skammta þarf af hverju lyfi fyrir sig. Oft eru milliverkanir þó skaðlegar á þann hátt að lyf geta dregið úr verkun hvert annars eða að aukin hætta er á eiturverkunum ef þau eru tekin samtímis.
Alltaf þarf að hafa hugsanlegar milliverkanir milli lyfja í huga þegar notuð eru tvö eða fleiri lyf samtímis. Þær milliverkanir sem eru taldar upp hér eru þær sem sýnt hefur verið fram á að hafi einhverja þýðingu fyrir meðferð. Þessar milliverkanir eru flokkaðar í tvo flokka:

Lyf má ekki taka með eftirtöldum lyfjum:
Hér eru taldar milliverkanir sem valda því að annað lyfið eða bæði verða annaðhvort skaðleg eða gagnslaus þegar þau eru tekin saman.

Lyfið og eftirtalin lyf geta haft áhrif á verkun hvert annars:
Hér eru taldar milliverkanir þar sem lyf annaðhvort auka eða draga úr verkun hvert annars, en hægt er að vega áhrifin upp með því að breyta skömmtum lyfjanna.

Listinn er ekki tæmandi. Nýjar milliverkanir geta komið fram og því er mikilvægt að þú takir alltaf fram hvaða lyf þú tekur fyrir þegar læknir ávísar nýju lyfi. Milliverkanir við lyf sem eru ekki skráð á Íslandi eru ekki taldar upp í þessari bók, og ekki heldur vægari milliverkanir og þær sem eru óstaðfestar.



Greinar

Kamilla

Fræðiheiti Matricaria chamomilla, L., en einnig þekkt sem Matricaria recutita og Chamomilla recutita (L.) Rauschert.Ætt: Körfublómaætt Asteraceae (Compositae)Önnur heiti KryddbaldursbráEnsk heiti German chamomile, genuine chamomile, hungarian chamomileEinkunn 2 = Að teknu tilliti til fjölda ve...

Meira

Spurt og svarað

Hvaða vörum mælið þið með sem fyrirbyggja hrukkur

SælGóð spurning. Það er mikið úrval í Lyfju af slíkum vörum, því er erfitt að fara að nefna eða mæla með einhverri tegund fram yfir aðra. Best er fyrir þig að leita til snyrtifræðings í Lyfju. T.d. Lyfju Smáratorgi þar sem úrvalið er hvað mest. Þar getur þú fengið ráðgjöf og jafnvel prufur. Misjafnt...

Meira