Krem í andlit

Húð Húðsjúkdómar

Ég er 22 ára og húðin mín er gróf í andlitinu og ég var með mikið af unglingabólum og fæ vanalega ennþá bólur af og til. Húðin er frekar blönduð feit of venjuleg. Hins vegar er ég búin að vera að fá mikið af svona undirhúðinni bólum núna sem eru ekki opnar heldur þegar ég snerti þær virka þær þrútnar. Þær koma aðallega frá eyrum og niður að höku. Getiði mælt með einhverjum húðvörum sem gætu hjálpað mér. Ég er í prófum og ímynda mér að þetta er líka tengt stressi en ég vil bara innilega finna einhverjar vörur sem geta hjálpað mér að halda þessu niðri.

Þetta væri nú frekar spurning til snyrtifræðinganna sem vinna hér og bað ég því einn af þeim að líta á spurninguna þína. Snyrtifræðingurinn gat ekki mælt með neinu sérstöku í gegnum netið og mælti með að þú myndir kíkja við í Lyfju Lágmúla á milli 18 og 24, alla mánudaga til fimmtudaga. Mun betra er að mæla með einhverju eftir að hafa séð við hvað er að fást.